Viðskipti innlent

Rafstuð getur komið frá handfangi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Kaffivélin er af þessari gerð.
Kaffivélin er af þessari gerð. Mynd/Philips
Philips hefur fundið öryggisgalla sem gæti haft áhrif á Philips Café Gourmet kaffivélar sem framleiddar voru frá mars 2012 til júní 2013. Á vef Mannvirkjastofnunar kemur fram að Philips kalli inn vélarnar í varúðarskyni.

Gallin lýsir sér þannig að í örfáum tilvikum er galli í einangrun sem valdið getur því rafstuð kemur frá stálhandfangi. Vandinn er ekki sagður eiga við um neina aðra Philips kaffivél.

„Neytendum, sem eiga Philips Café Gourmet kaffivél með tegundarnúmerinu HD 5405 og framleiðsluviku með númeri frá 1212 upp í 1323, er ráðlagt að hætta notkun á henni tafarlaust,“ segir í upplýsingablaði Philips.

Frekari upplýsingar er að fá hjá Heimilistækjum, en þangað á fólk að skila gölluðum kaffivélum. 

Nálgast má upplýsingablað Philips um innköllunin hér á vef raftækjaframleiðandans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×