Viðskipti innlent

Vilhjálmur skilar séráliti um afnám verðtryggingar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vilhjálmur hvikar ekki frá því að afnema beri verðtrygginguna.
Vilhjálmur hvikar ekki frá því að afnema beri verðtrygginguna.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og meðlimur í starfshópi um afnám verðtryggingar segist munu skila séráliti um málið, en niðurstöður hópsins verða kynntar á blaðamannafundi í atvinnuvegaráðuneytinu klukkan fjögur í dag.

Starfshópurinn er því ekki einhuga um hversu langt skuli ganga, en RÚV greinir frá því að heimildir fréttastofunnar hermi að ekki verði lagt til blátt bann við verðtryggingu heldur lagðar til ýmsar breytingar. Verði þær að veruleika muni þær ná til nýrra neytendalána en ekki lána sem þegar eru til staðar, enda sé það flóknara og hæpnara mál. Vilhjálmur segist ekki hvika frá þeirri skoðun sinni að afnema beri verðtrygginguna.

Starfshópurinn var skipaður af Alþingi og hefur starfað síðan í ágúst. Formaður hópsins er Ingibjörg Ingvadóttir lögmaður en aðrir sem í honum sitja eru Helga Hlín Hákonardóttir lögmaður, Iða Brá Benediktsdóttir viðskiptafræðingur, Sigrún Ólafsdóttir alþjóðaviðskiptafræðingur í forsætisráðuneytinu, Tómas Brynjólfsson skrfistofustjóri í fjármálaráðuneytinu, Valdimar Ármann hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur og Vilhjálmur Birgisson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×