Íslenska bankakreppan var ein allra dýrasta kreppa í heiminum Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. janúar 2014 21:42
Heildarframlag ríkissjóðs til fjármálafyrirtækja eftir bankahrunið í formi eigin fjár, víkjandi lána og ábyrgða nemur samtals 537 milljörðum króna á árunum 2009 - 2013. Óvíst hversu stór hluti er tapaður. Íslenska bankakreppan var ein allra dýrasta kreppa í heiminum með hliðsjón af kostnaði ríkissjóðs, að mati sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í fjölda greina hér innanlands og erlendis hefur því verið haldið fram að „hin íslenska leið“ út úr hruninu hafi falist í því að láta ríkissjóð ekki greiða fyrir skuldir einkarekinna fjármálafyrirtækja og ríkissjóður hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna falls bankanna. Þetta var oft gert með því að setja málið í samhengi við neyðarlögin annars vegar og Icesave, en Icesave-reikningar Landsbankans voru bara einn liður af mörgum þegar úrlausnarefni fjármálakerfisins voru annars vegar. Íslensk stjórnvöld, og þar með íslenskir skattgreiðendur, sluppu langt frá því vel þótt fullnaðarsigur hafi náðst í Icesave-málinu og íslenska ríkið þurfti ekki að þola það að taka á sig skuldbindingar á grundvelli tilskipunar 94/19 um innistæðutryggingar þar sem engri ríkisábyrgð var til að dreifa. Þar með er ekki sagt að íslenskir skattgreiðendur hafi ekki borið mikinn kostnað vegna falls bankakerfisins og síðan endurreisn þess. Hátt í 600 milljarða króna framlög til bankanna eftir hrun Hver eru heildarframlög ríkissjóðs til fjármálafyrirtækaj eftir hrunið? Fréttastofan tók saman heildarframlög í formi eiginfjár, víkjandi lána og ábyrgða á árunum 2009 - 2013, eftir endurreisn bankakerfisins. Í tilviki Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans eru þetta samtals 313 milljarðar króna. Síðan þegar tekið er saman framlag til smærri fjármálafyrirtækja eins og Straums, Sögu Capital, VBS Fjárfestingarbanka, Aska Capital, SPRON, Byrs og Sparisjóðsins í Keflavík er þetta uppsafnað 537 milljarðar króna. (Sjá grafík í myndskeiði með frétt). Þessar tölur eru fengnar úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um fyrirgreiðslu ríkisins við fjármálafyrirtæki annars vegar og skýrslu fjármálaráðherra um endurreisn viðskiptabankanna hins vegar. Óvíst er hvaða tjón raungerist vegna þessara fjárveitinga til bankanna en í mörgum tilvikum er um háar fjárhæðir að ræða í formi víkjandi lána. Í þessu samhengi má nefna að upphafleg kostnaðaráætlun Kárahnjúkavirkjunar hljópaði upp á 100 milljarða króna og var dýrasta virkjanaframkvæmd Íslandssögunnar. Þetta er því ígildi ríflega fimm Kárahnjúkavirkjana. Hér er tjón vegna ástarbréfaviðskipta bankanna við Seðlabankann fyrir hrun ekki tekið með í reikninginn. Þá eru heldur ekki tilgreind framlög til vátryggingafyrirtækja eins og Sjóvár. Það er því ljóst að þessi fjárhæð gæti orðið miklu hærri. Mýtur um íslensku leiðina leiðréttar Í þessari grein eftir Þórólf Matthíasson prófessor í hagfræði og Sigrúnu Davíðsdóttur blaðamann sem kom út núna í desember sl. er gerð tilraun til að hrekja mýtur sem tengjast íslenska bankahruninu. Ein flökkusagan er að ríkissjóður hafi ekki tapað neinu á falli stóru bankanna þriggja. Þau Sigrún og Þórólfur segja að þetta sé því miður ekki satt. Væntanlegur beinn kostnaður ríkissjóðs, uppsafnaður, sé á bilinu 20-25% af landsframleiðslu Íslands, en það er um 400 milljarðar króna. Hagfræðingarnir Luc Laeven and Fabián Valencia segja í greiningu á bankakreppum sem þeir gerðu fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í fyrra að með hliðsjón af kostnaði ríkissjóðs sem hlutfalli af landsframleiðslu séu bankakreppunar á Íslandi og Írlandi þegar meðal tíu dýrustu bankakreppa mannkynssögunnar.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira