Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður selur mun fleiri eignir en í fyrra

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Séð yfir Keflavík. Í janúar síðastliðnum voru íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs flestar á Suðurnesjum, 804 talsins.
Séð yfir Keflavík. Í janúar síðastliðnum voru íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs flestar á Suðurnesjum, 804 talsins. Fréttablaðið/GVA
Almenn útlán Íbúðalánasjóðs drógust saman um tæp 43 prósent í janúar miðað við sama tíma í fyrra. Fram kemur í nýbirtri mánaðarskýrslu sjóðsins að almenn útlán í mánuðinum hafi numið 489 milljónum króna, samanborið við 854 milljónir í janúar 2013. Uppgreiðslur námu 1,5 milljörðum króna.

Þá kemur fram í skýrslunni að áfram dragi úr vanskilum, en heimilum í vanskilum hafi fækkað um tæp 2,5 prósent á milli mánaða. Þá haldi áfram að lækka undirliggjandi virði lána einstaklinga í vanskilum.

„Í lok janúar nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 4,3 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 66,6 milljarðar króna, eða um 10,27 prósent útlána sjóðsins til einstaklinga, sem er 3,12 prósentum lægra hlutfall en í janúar 2013,“ segir í skýrslunni.

Í janúar seldi sjóðurinn 27 fasteignir, þrisvar sinnum fleiri en ári fyrr þegar seldar voru níu eignir. „Þá er að auki búið að samþykkja kauptilboð í 81 eign til viðbótar,“ segir í mánaðarskýrslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×