Viðskipti innlent

Rúna Dögg til Brandenburgar

Rúna Dögg Cortez
Rúna Dögg Cortez Mynd/Brandenburg
Rúna Dögg Cortez hóf nýlega störf hjá auglýsingastofunni Brandenburg og mun hún starfa þar sem stafrænn stjórnandi (e. Digital marketing director).

Rúna er útskrifuð úr Háskóla Íslands með BA – gráðu í sálfræði og stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.



Rúna starfaði áður hjá Auglýsingamiðlun en hún var framkvæmdastjóri fyrirtækisins á árunum 2010-2014 ásamt því að sitja í stjórn Samtaka íslenskra auglýsingastofa árin 2012-2013.

Í tilkynningu frá Brandenburg segir að Rúna muni koma til með að móta og útfæra þann hluta markaðsfærslunnar sem snýr að því að nýta netið og samfélagsmiðla.  

Starfsmenn stofunnar eru nú 15 talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×