Viðskipti innlent

52 tilnefningar til stjórnunarverðlauna

Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er meðal þeirra tilnefndu.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er meðal þeirra tilnefndu.
Tilnefningar til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi fyrir árið í ár hafa verið opinberuð.

„Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt árlega þeim stjórnendum sem þykja hafa skarað framúr á sínu sviði. Félagar í Stjórnvísi tilnefna stjórnendur (1 eða fleiri), út frá þeim viðmiðum sem sett eru hverju sinni. Síðan tekur dómnefnd við öllum tilnefningargögnum og vinnur úr þeim,“ segir á vef Stjórnvísi um verðlaunin.

Stjórnunarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn í mars 2009.

Alls voru 52 stjórnendur  tilnefndir í ár, 28 konur og 24 karlar, en meðal þeirra eru Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans, Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Unnur Gunnarsdóttir forstjóri fjármálaeftirlitsins og Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Vodafone.

Allar tilnefningar til verðlaunanna má nálgast á vef Stjórnvísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×