Viðskipti innlent

Hagnaður fór úr sjö milljónum í 187 milljónir á milli ára

Samúel Karl Ólason skrifar
Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa.
Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa.
Landsbréf hf. högnuðust um 187 milljónir króna í fyrra, eignir í stýringu jukust um 33 prósent og námu rúmum 110 milljörðum króna í árslok. Árið 2012 var hagnaður Landsbréfa tæpar sjö milljónir króna.

Þetta kemur fram í ársreikningum og tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í lok ársins var eigið fé Landsbréfa 1.644 milljónir króna og eiginfjárhlutfall var 115,5 prósent. Hreinar rekstrartekjur námu 969 milljónum króna árið 2013 en 443 milljónum 2012.

Á árinu valdi Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta Landsbréf sem einn þriggja aðila til að stýra eignum sjóðsins að undangengnu útboði og hæfismati. Þá veitti Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands Landsbréfum viðurkenningu í lok árs sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu 2013 og hafa sjóðir félagsins skilað góðum árangri fyrir fjárfesta. Árið einkenndist af miklum vexti og þróun nýrra afurða og má sem dæmi um slíkt nefna að á haustmánuðum voru kauphallarsjóðirnir Landsbréf – LEQ og Landsbréf – LREAL teknir til viðskipta í Kauphöllinni. Kauphallarsjóðir hafa notið vaxandi vinsælda erlendis og má gera ráð fyrir að þróunin verði á sama veg hér á landi,“ segir Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×