Viðskipti innlent

Eyjan verður að blaði og sjónvarpsþætti

Björn Ingi Hrafnsson verður umsjónarmaður þáttarins.
Björn Ingi Hrafnsson verður umsjónarmaður þáttarins. Vísir/Valgarður (t.h.)
Fréttaveitan Eyjan mun bráðlega standa fyrir nýjum sjónvarpsþætti á Stöð tvö og blaði sem dreift verður ókeypis með Fréttablaðinu.

Þetta kemur í kjölfar samnings milli 365 miðla og Eyjan miðlar ehf. Björn Ingi Hrafnsson verður umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins væntanlega en mun áfram gegna starfi útgefanda og ábyrgðarmanns Eyjunnar. Magnús Geir Eyjólfsson verður áfram ritstjóri vefsíðu Eyjunnar. Magnús og Björn Ingi munu saman ritstýra blaðinu.

„Ég er sannfærður um að þetta samstarf á eftir að auka og dýpka fjölmiðlaumfjöllun um stjórnmál og efnahagsmál hér á landi,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365, í tilkynningu um samkomulag miðlanna. 

Þátturinn verður sýndur vikulega í opinni dagskrá og mun blaðið koma út ekki sjaldnar en mánaðarlega. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×