Konum sem beita heimilisofbeldi boðin meðferð Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 1. september 2014 09:46 Aukin umræða um ofbeldi og afleiðingar þess á börn sem og aukið eftirlit barnaverndar og lögreglu hefur skilað sér í því að fleiri gerendur leita sér hjálpar. Vísir/VAlli
Síðastliðið vor var farið af stað með meðferðartilboð fyrir konur sem eru gerendur heimilisofbeldis. Meðferðin er í boði hjá átakinu Karlar til ábyrgðar, sem hingað til hefur verið sérhæft meðferðarúrræði fyrir einungis karla sem beita ofbeldi í nánum samböndum. Tvær konur hafa komið til meðferðar og segir Andrés Ragnarsson, sálfræðingur hjá Körlum til ábyrgðar, að líkamlegt ofbeldi sem konur beiti komi sjaldnar upp á yfirborðið. „Karlar eru líkamlega sterkari og afleiðingar ofbeldisins verða oft verri. Þar af leiðandi verður ofbeldið sýnilegra og gripið fyrr inn í af barnaverndaryfirvöldum eða lögreglu.“ Þeim sem leita sér meðferðar hjá Körlum til ábyrgðar hefur fjölgað mikið. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs hafa fjörutíu nýir karlar sótt meðferð og 25 mál haldið áfram frá fyrra ári. Árið 2013 komu alls 45 nýir karlar í meðferð á öllu árinu og því talið að aukningin verði 20-30 prósent á milli ára.Andrés Ragnarsson sálfræðingur hjá Körlum til ábyrgðar.fréttablaðið/AuðunnAndrés segir fjölgunina felast einkum í þremur hópum. Það séu ungir gerendur sem koma eftir eitt ofbeldistilvik og vilja strax taka á sínum vanda. Það séu fleiri tilvísanir frá barnaverndarnefndum, ekki síst frá Suðurnesjunum þar sem mikið átak hefur verið gegn heimilisofbeldi, og í þriðja lagi komi fleiri karlar af eigin hvötum til meðferðar. „Ég tel að aukningin hjá okkur sé ekki merking um að ofbeldið sé að aukast heldur að aukin umræða um þessi mál og vitundarvakningin skili sér í að fleiri leiti sér hjálpar,“ segir Andrés og bætir við að fólk sé farið að átta sig á áhrifunum sem ofbeldið hefur á börnin á heimilinu. „Afleiðingar heimilisofbeldis á börn eru mun meiri en fólk hefur gert sér grein fyrir. En nú eru bæði gerendur og makar farnir að grípa fyrr í taumana og bjóða ekki börnum sínum upp á þessar aðstæður.“ Bæði er boðið upp á einstaklingsmeðferð og hópmeðferð fyrir gerendur ofbeldis, og er hópmeðferðin alltaf fullsetin. Einnig er öllum mökum boðið í viðtal eftir að gerandi hefur hafið meðferð.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Fleiri fréttir Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Sjá meira