Kæra Íbúðalánasjóð til ESA Sveinn Arnarsson skrifar 5. nóvember 2014 00:01 Íbúðalánasjóður er í Höfðaborg við Borgartún í Reykjavík. Fréttablaðið/GVA
Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta, telur fulla ástæðu til að kæra Íbúðalánasjóð til umboðsmanns Alþingis og Eftirlitsstofnunar Evrópu (ESA), vegna starfsemi leigufélagsins Kletts. Hann hefur látið útbúa lögfræðiálit vegna þessa og leggur á næstunni kæru fyrir stjórnarfund. Þetta kom fram á aðalfundi Búseta á Norðurlandi í byrjun vikunnar. Málatilbúnaður Búseta byggir á að Íbúðalánasjóð skorti lagaheimild til að reka leigufélag. Eins sé það í ósamræmi við góða viðskiptahætti að eiga og reka íbúðir í samkeppni við eigin viðskiptamenn. Árið 2012 var bætt við húsnæðislög ákvæði um að verkefni Íbúðalánasjóðs væru til að mynda að eiga leigufélag með íbúðarhúsnæði sem sjóðurinn hefur yfirtekið á nauðungarsölu samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð sem ráðherra setur. Sú reglugerð sem lögin tilgreina hefur hins vegar aldrei litið dagsins ljós. Forsvarsmenn Búseta telja þarna um markaðsskekkjandi ráðstafanir að ræða. Íbúðalánasjóður sé í of nánum samskiptum við keppinauta á markaði, þar sem þeir haldi á öllum gögnum varðandi Búseta. Í venjubundnum samkeppnisrekstri væri þetta ekki ásættanlegt ástand. Á aðalfundi Búseta á Norðurlandi á mánudaginn var gagnrýndi Benedikt Íbúðalánasjóð harðlega og taldi félagið ekki hafa notið sannmælis í samskiptum við sjóðinn. „Neikvætt viðhorf einstakra stjórnenda Íbúðalánasjóðs til húsnæðissamvinnufélaga hefur gert félaginu erfitt fyrir. Misvísandi, og í sumum tilvikum röng upplýsingagjöf, er alvarlegur hlutur.“ Einnig sagði Benedikt frá því á fundinum að með „pólitískum bellibrögðum“ hefði leiðrétting verðtryggðra lána ekki verið látin ná til búseta í almennum íbúðum húsnæðissamvinnufélaganna. Sagði hann frá því að félagið ynni að því í samstarfi við Búseta í Reykjavík og Búmenn að fá einnig þann forsendubrest leiðréttan. Búseti á Norðurlandi á og rekur um 220 íbúðir á Akureyri sem félagið leigir út með búsetufyrirkomulagi. Tekist hefur að endurfjármagna lán Búseta hjá Íbúðalánasjóði.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira