Viðskipti innlent

„Ef Íslendingar geta það“

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Þorsteinn B. Friðriksson framkvæmdastjóri Plain Vanilla
Þorsteinn B. Friðriksson framkvæmdastjóri Plain Vanilla Vísir/Valli
Snjalltækjaleikjaframleiðandinn Plain Vanilla var til umræðu hjá dálkahöfundi á viðskiptasíðu BBC, Rory Cellan-Jones, í síðustu viku.

Cellan-Jones velti þar fyrir sér hvernig blönkum Íslendingi tókst að búa til leik sem sló í gegn á heimsvísu, sér í lagi þar sem erfiðlega gengur hjá mörgum breskum sprotafyrirtækjum að verða sér úti um fjármagn frá fjárfestum.

Cellan-Jones hitti Þorstein Baldur Friðriksson, stofnanda Plain Vanilla, í síðustu viku.

Cellan-Jones veltir því upp í greininni hvað Bretar geti lært af Plain Vanilla því að meira að segja í Bretlandi eigi tæknifyrirtæki erfitt uppdráttar. Ljóst sé að Kalifornía sé enn fyrirheitna landið fyrir unga frumkvöðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×