Viðskipti innlent

Sigurjón fær ekki einn og hálfan milljarð

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Kröfum Sigurjóns og hans fólks var hafnað.
Kröfum Sigurjóns og hans fólks var hafnað.
Kröfum Sigurjóns Sighvatssonar og félags í hans eigu, Ofanleiti ehf, í þrotabú Glitnis var hafnað.

Eins og sagt er frá í Viðskiptablaðinu hljóðuðu kröfurnar upp á um einn og hálfan milljarð króna. Sigurjón lagði fram kröfurnar vegna þess að hann og tengdafólk hans keyptu félagið VG Investments sem var óskráð félag í Danmörku árið 2005. Starfsmaður einkabankaþjónustu Glitnis veitti ráðgjöf við kaupin. Sigurjón og tengdafólk hans töldu þjónustuna sem ráðgjafinn veitti hafa verið ófullnægjandi. Mikið tap varð af fjárfestingu þeirra í þessu danska félagi.

Héraðsdómur tók ekki undir málatilbúnað þeirra um að Glitnir væri skaðabótaskyldur vegna tapsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×