Vífilfell hættir framleiðslu á Diet Coke: Flöskurnar verða horfnar eftir tvær vikur Stefán Árni Pálsson skrifar 6. nóvember 2014 18:26 vísir
Vífilfell hefur hætt framleiðslu á Diet Coke. Ísland hefur verið eina landið í heiminum þar sem Coca-Cola fyrirtækið hefur verið með þrjá sykurlausa Coke drykki á markaði, en í flestum löndum eru aðeins tvær tegundir fáanlegar. Fyrr á þessu ári hætti Vífilfell framleiðslu á Diet Coke í tveggja lítra umbúðum og við það tækifæri var tilkynnt að síðasta umbúðastærðin, Diet Coke í 0,5 lítra flöskum, yrði tekin af markaði von bráðar. Diet Coke hefur verið á markaði hérlendis síðan 1985. Á undanförnum árum hefur Coca-Cola fyrirtækið hins vegar kynnt tvo nýja sykurlausa Coke-drykki undir nöfnunum Coke Light og Coke Zero, og hafa þeir nær alfarið tekið við af Diet Coke. Forráðamenn Vífilfells hafa reynt allt til að halda Diet-Coke áfram á markaði, en nú er svo komið að dyggir unnendur Diet Coke hér á landi eru ekki nógu margir lengur til að réttlæta áframhaldandi framleiðslu drykkjarins. „Við vitum að það eru allnokkrir staðfastir Diet Coke neytendur og því viljum við láta þá vita í tæka tíð. Síðustu birgðirnar eru að fara í verslanir og eftir það verður ekki meira framleitt. Það fer því hver að verða síðastur til að tryggja sér Diet Coke áður en löngu og farsælu skeiði þess lýkur hér á landi,“ segir Jón Viðar Stefánsson, markaðsstjóri gosdrykkja hjá Vífilfelli. Búast má við að birgðir verslana verði uppurnar eftir tvær vikur, hugsanlega þó skemur, taki miklir unnendur drykkjarins upp á því að hamstra síðustu Diet Coke flöskurnar.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira