Einföld sala sem hefur endað í hneyksli Heimir Már Pétursson skrifar 25. október 2014 09:32 Samningur um kaupin hafi verið undirritaður hinn 17. desember í fyrra. Vísir/Vilhelm
Vefur norska dagblaðsins Verdens Gang segir í dag að það sem átti að vera einföld sala á notuðum byssum frá norska hernum til Landhelgisgæslunnar á Íslandi hafi endað í hneyksli sem í versta falli geti orðið ríkisstjórn Íslands að falli. Fram kemur í greininni að samningur um sölu vopnanna hafi verið undirritaður hinn 17. desember í fyrra. Í grein Verdens Gang segir að byssumálið hafi valdið miklu umróti á Íslandi að undanförnu en hvorki Alþingi né almenningi á sögueyjunni hafi verið kunnugt um kaup Landhelgisgæslunnar á 250 notuðum hríðskotabyssum frá nosrka hernum. En um sé að ræða hríðskotabyssur af gerðinni Heckler & Koch MP5 sem framleiddar hafi verið í Þýskalandi frá árinu 1966. Þá greinir Verdens Gang frá því að stjórnvöld á Íslandi kannist ekki við að hafa keypt vopnin heldur þegið þau að gjöf frá norska hernum. Sumir Íslendingar telji að hríðskotabyssurnar hafi átt að vera sárabót fyrir að Norðmenn ætluðu að hætta að gefa Íslendingum jólatré. Haft er eftir talsmanni norska hersins að það sé rugl. Norski herinn hafi selt Landhelgisgæslunni 250 hríðskotabyssur í fyrra fyrir 625 þúsund norskar krónur eða sem svarar til 11,5 milljóna íslenskra króna. Samningur um kaupin hafi verið undirritaður hinn 17. desember í fyrra.
Mest lesið Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Innlent Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Innlent Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Innlent Ísland orðið „pínkulítið lélegra og leiðinlegra“ Innlent Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Alvarlegt rútuslys og kona sem á níutíu þúsund servíettur Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Lýðheilsufræðingar segja aukið aðgengi að áfengi alvarlegt mál Elsta skip Samherja kveður Dalvík og heldur til Spánar Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda Quang Lé laus úr gæsluvarðhaldi en í farbanni Stór skörð að fylla eftir að þúsundir drápust Ofurkarlmennska geti reynst ávísun á hómófóbíu og kvenfyrirlitningu Brenna landnámsbæ til kaldra kola í tilraunaskyni Fimm bíla árekstur á Akureyri Vill úrbætur sem fyrst á Flóttamannaleið Gríska húsinu lokað Byggðakvótakerfið úr sér gengið Kynna 150 aðgerðir í loftslagsmálum Umfangsmikil aðgerð Europol: Netþjónar á Íslandi hýstu hryðjuverkaáróður Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum Útlendingafrumvarpið hefur verið samþykkt Ekkert breyst til batnaðar í rekstri borgarinnar Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Átök á Alþingi og víkingar taka yfir Hafnarfjörð Heimtaði að allir í bænum töluðu íslensku Mikið svifryk í borginni og gosmóða líkleg síðar í dag Vill styðja vantrauststillögu komi hún fram Sjá meira