Kostnaður við rannsóknarskýrslur 1,5 milljarðar Heimir Már Pétursson skrifar 25. ágúst 2014 14:44 Karl Garðarsson segir kostnaðinn við rannsóknarskýrslur Alþingis kominn út úr öllu korti. Setja verði skýran ramma um rannsóknarnefndir þingsins hvað varðar umfang og kostnað. vísir/vilhelm
Fulltrúi Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd segir kostnað við rannsóknarskýrslur Alþingis kominn út úr öllu korti. Kostnaður við sparisjóðaskýrsluna eina sé orðinn svipaður og kostnaðurinn við rannsóknina á hruni bankanna og stöðu Íbúðalánasjóð til samans. Karl Garðarsson fulltrúi Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd Alþingis segir að kostnaður við rannsóknarskýrslur Alþingis um hrun bankanna, Íbúðalánasjóð og fall sparisjóðanna komi mjög á óvart en hann stefni í einn og hálfan milljarð króna. „Og það sem vekur sérstaka athygli og við fengum upplýsingar um í fjárlaganefnd í morgun er að það stefnir nú í að skýrslan um sparisjóðina, nýjasta skýrslan, kosti allt að 700 milljónir króna. Það er að segja að kostnaðurinn við þessa einu skýrslu er farinn að nálgast það að vera sami kostnaðurinn og við hinar tvær skýrslurnar um Íbúðalánasjóð og hrun bankanna,“ segir Karl. Og þar með sé ekki öll sagan sögð því fjárlaganefnd hafi verið upplýst um að kostnaðurinn við sparisjóðaskýrsluna geti orðið enn meiri. Skrá þurfi skýrsluna hjá Þjóðskjalasafni sem geti kostað tugi milljóna króna. Engin skýring hafi komið fram á miklum kostnaði við sparisjóðaskýrsluna en ljóst sé að þar hafi menn farið mjög víða í rannsóknum sínum sem geti skýrt hluta kostnaðarins. „En það er alveg ljóst að það þarf að skýra þetta betur og ég mun krefjast svara við því strax í upphafi þings. Þessi kostnaður er hreinlega út úr öllu korti. Það liggur alveg ljóst fyrir. Það verður að gera góða grein fyrir því hvernig á þessu stendur,“ segir Karl. Alþingi sjálft hafi sett af stað rannsókn á þessum kostnaði því ljóst sé að þessi mál geti ekki gengið með þeim hætti sem þau hafi gert. „Og mjög undarlegt ef Alþingi getur ekki haldið betur á sínum eigin málum. Hvernig eigum við þá að geta haldið á málum þjóðarinnar,“ segir Karl.Það var í mjög óvenjulegu ástandi sem þessar rannsóknarnefndir voru skipaðar og ekki oft sem það hefur gerst á íslandi áður. Þarf Alþingi kannski að móta fastmótaðri ramm utan um það hvernig staðið er að svona rannsóknum? „Alþingi þarf að móta mun ákveðnari ramma um þessar nefndir. Auðvitað þarf að rannsaka ýmislegt og rannsóknarnefndir eiga alveg rétt á sér. Alþingi þarf hins vegar að ákveða hvað svona hlutir mega kosta. Það þarf að móta ramma utan um það hvað á að rannsaka nákvæmlega. Ekki hreinlega samþykkja ályktanir sem eru mjög víðtækar og menn geta túlkað í allar áttir,“ segir Karl Garðarsson.
Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Fleiri fréttir Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Sjá meira