Seðlabankastjóri svarar rangfærslum huldumanns Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. febrúar 2014 18:41 Már Guðmundsson seðlabankastjóri VISIR/ANTON
Már Guðmundsson seðlabankastjóri birti í dag athugasemdir sínar við skrif á vefsíðu Viðskiptablaðsins í gær sem birtar voru undir dulnefninu Týr. Samhliða athugasemdunum birtir seðlabankastjóri minnsblað frá fundi sínum með þáverandi ráðherrum dagsettu 7. ágúst 2008 sem ekki hefur verið birt áður en var meðal annars í gögnum Rannsóknarnefndar Alþingis „Þá er langt gengið því ég hef látið fjölmargar rangfærslur í fjölmiðlum óáreittar á undanförnum árum enda tíminn til nytsamlegra starfa af skornum skammti og margt leiðréttir sig sjálft með tímanum eða er svo fáránlegt að fáir taka mark á,“ segir Már í upphafi athugasemdanna. Týr ber þær sakir á Má að hafa í aðdraganda falls bankanna haustið 2008 sagt að ódýrara væri að bjarga íslensku bönkunum en að láta þá falla. Í minnisblaðinu kemur fram að Már taldi að meginvandi bankanna væri sá að þeir ættu við skæðan lausafjárvanda að stríða í erlendri mynt og að það gæti leitt til falls eins eða fleiri banka. „Hvergi er talað um að „bjarga“ bönkunum, hvað þá að þjóðnýta þá eða að veita opnar ríkisábyrgðir umfram það sem gæti falist í takmarkaðri vernd innstæðueigenda,“ segir Már í athugasemdunum og bendir einnig á að áherslan hafi verið lögð á að búa til viðbúnaðaráætlun ef til falls myndi koma. Már bendir á að hafa verði „hins vegar í huga að minnisblaðið var skrifað fyrir öngþveitið sem varð í framhaldi af falli Lehman Brothers og að ég hafði á þessum tíma ekki aðrar upplýsingar um íslensku bankana en þær sem birst höfðu opinberlega.“ Týr dregur einnig ráðningaferli Más í efa og telur hann hafa haft óeðlileg pólitísk tengsl við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Huldumaðurinn fullyrðir að Már hafi rætt við þáverandi forsætisráðherra meðan á umsóknarferlinu stóð. Má grunar að þar hafi hann ruglað saman samtali sem hann segist hafa átt við þáverandi formann bankaráðs um þau launakjör sem honum byðist, þæði hann starfið. „Ég hefði heldur aldrei haft samband við Láru nema vegna þess að hæfnisnefndin sem Jónas Haralz heitinn stýrði og í áttu auk hans sæti Guðmundur Magnússson, prófessor, og Lára V. Júlíusdóttir, hafði þá nýverið sett mig í flokkinn „mjög vel hæfur“ ásamt Arnóri Sighvatssyni og nefnt mitt nafn á undan,“ segir Már og bætir við að ef „niðurstaða hæfnisnefndar hefði verið einhver allt önnur hefði ég einfaldlega unað glaður við mitt góða starf í Basel.“ Minnisblaðið má nálgast í viðhengi fréttarinnar.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent