Síminn ósáttur við fullyrðingar Hringdu 1. júlí 2014 16:00 visir/vilhelm
Síminn segir að það sé ekkert sem styðji þá fullyrðingu Hringdu að breytt mæling á internetnotkun „opni á frekari gjaldskrárhækkanir á fjarskiptamarkaði.“ Eftir að fjarskiptafyrirtækið Hringdu sendi frá sér tilkynningu í dag þess efnis að fyrirtækið hyggst bjóða viðskiptavinum sínum upp á ótakmarkað gagnamagn frá og með deginum í dag hefur Síminn sent frá sér tilkynningu til Vísis. Síminn tilkynnti á dögunum að frá og með 1. september hyggist hann rukka viðskiptavini sína fyrir alla internetnotkun, bæði innlenda og erlenda, upp- og niðurhal. Fram kemur í fréttatilkynningunni frá Hringdu ehf. að fyrirtækið hafi lýst því yfir að þessi tilhögun Símans sé slæm fyrir neytendur og að breytingarnar bæði dragi úr gegnsæi og opni á frekari gjaldskrárhækkanir á fjarskiptamarkaði. Í tilefni af ummælum sem birt eru úr fréttatilkynningu frá Hringdu vill Síminn taka fram að:• Það er ekkert sem styður þá fullyrðingu Hringdu að breytt mæling á internetnotkun „opni á frekari gjaldskrárhækkanir á fjarskiptamarkaði.“• Þvert á móti. Þessi breyting, sem stefnt er á í september, hentar 98% af viðskiptavinum Símans og stór hópur viðskiptavina mun geta lækkað reikning sinn frá því sem nú er, þar sem þeir geta farið í hagstæðari þjónustuleið.• Ástæðan er sú að pakkarnir sem viðskiptavinum standa til boða eru stækkaðir verulega og því rúmast notkun þorra viðskiptavina innan þessa. Grunnpakkinn mun frá 1. júlí innihalda 15 GB en hafði áður 1 GB. Stærð hans fimmtánfaldast. 10 GB leiðin ríflega sjöfaldast og verður 75 GB. Bæði 50 GB og 100 GB leiðirnar þrefaldast og verða annars vegar 150 GB og hins vegar 300 GB. Og sú stærsta sem áður var 200 GB verður 600 GB.• Þau ca. tvö prósent viðskiptavina sem gætu fundið aukningu eftir breytinguna eru ofur-notendur sem standa undir 25% allrar notkunar á neti Símans. Einn slíkur viðskiptavinur getur verið með gagnanotkun á við nokkur þúsund heimili.• Þessi nýja mæling er sanngjörn, eykur gegnsæi á markaði og er viðskiptavinum í hag.
Tengdar fréttir Bjóða ótakmarkað gagnamagn með ADSL Fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur ákveðið bjóða viðskiptavinum sínum upp á ótakmarkað gagnamagn frá og með deginum í dag en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. 1. júlí 2014 10:00 Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Sjá meira
Bjóða ótakmarkað gagnamagn með ADSL Fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur ákveðið bjóða viðskiptavinum sínum upp á ótakmarkað gagnamagn frá og með deginum í dag en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. 1. júlí 2014 10:00
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent