Mercedes menn fljótastir á föstudegi - Alonso á förum frá Ferrari? Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 3. október 2014 16:00 Rosberg á Suzuka brautinni með Hamilton á hælunum. Vísir/Getty
Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingunni og liðsfélagi hans Lewis Hamilton var fljótastur á þeirri seinni. Hamilton varð annar á fyrri æfingunni, Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji og Valtteri Bottas á Williams varð fjórði. Helstu fréttir æfingarinnar voru þær að Caterham liðið mætti með mikið endurbættan framvæng sem leiddi til þess að bæði Marcus Ericsson og Roberto Merhi á Caterham voru fljótari en Marussia ökumenninrnir. Max Verstappen yngsti ökumaður á Formúlu 1 keppnishelgi frá upphafi varð 12. og ók 22 hringi. Hann hefur eflaust náð í gríðarlega mikilvæga reynslu og hann komst í gegnum æfinguna án meiriháttar óhappa. Rosberg varð annar á seinni æfingu dagsins, Bottas þriðji og Jenson Button á McLaren fjórði. Tíundi hraðasti maður æfingarinnar, Daniel Ricciardo klessti Red Bull bíl sinn í síðustu hægri beygjunni á Suzuka brautinni. Rauðum flöggum var þá veifað og æfingin stöðvuð tímabundið.Jean-Eric Vergne lenti í því að Toro Rosso bíllinn bilaði, æfingin var aftur stöðvuð í kjölfarið. Esteban Gutierrez missti stjórn á Sauber bíl sínum sem endaði á varnarvegg. Hetja heimamanna, Kamui Kobayashi á Caterham lenti einnig í því að klessa á eftir einungis fjóra hringi. Tímatakan fyrir japanska kappaksturinn fer fram í fyrramálið og hefst bein útsending klukkann 4:50 á Stöð 2 Sport. Útsending frá keppninni hefst svo klukkan 5:30 á sunnudagsmorgun.Verður litasamsetningin á bíl Alonso einhver önnur á næsta ári?Vísir/GettyFernando Alonso á förum? Heitasta umræðan í Formúlu 1 heimum í dag er sú hvar Alonso ekur á næsta tímabili. Engin leynd hefur verið yfir því að Alonso er ekki ánægður með gang mála hjá Ferrari. Spánverjanum þykir ganga of hægt að koma bílnum í samkeppnishæft form. Hinn 33 ára ökumaður hefur nú verið hjá Ferrari í fimm ár. Honum hefur ekki enn orðið ágengt um að ná í sinn þriðja heimsmeistaratitil, sem hann þráir svo heitt. Ferrari segir nú að ólíklegt sé að liðið nái að vinna titla fyrr en 2017, þegar Marco Mattiacci hefur lokið endurskipulaggningu liðsins. Talið er nánast öruggt að Alonso ætli sér að yfirgefa liðið þegar tímabilið er búið. Þó er endanleg ákveöðrun um slíkt í höndum Ferrari. Alonso hefur sjálfur sagt það og benti á að núverandi samningur hans nái til 2016. Enginn samningur er kominn á við McLaren en þangað langar Alonso ef orðrómurinn er réttur. Næstu vikur munu leiða í ljós hvernig málið endar. Mikil spenna er að myndast á ökumanns markaðinum og forvitnilegt verður að sjá hver endar hvar.
Formúla Tengdar fréttir Bílskúrinn: Hitinn og hasarinn í Singapúr Þá er komið að því að skoða hvað er annað að frétta frá Singapúr en framúrakstur Lewis Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna. 24. september 2014 06:00 Max Verstappen sá yngsti frá upphafi Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag. 30. september 2014 15:00 Ricciardo: Lokakeppnirnar munu sanna hvor er hraðari Daniel Ricciardo hjá Red Bull telur að síðustu fimm keppnir tímabilsins muni skera úr um hvor ökumanna liðsins er hraðari, hann sjálfur eða fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel. 1. október 2014 21:30 Vettel: Akstursstíll skýrir lélegt gengi Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel segir að ósamræmi milli aksturseiginleika RB10 bílsins og eigin akstursstíls útskýra hvers vegna illa hefur gengið í ár. 25. september 2014 22:30 Lotus lofar bótum og betrun á næsta ári Lotus liðið hefur átt erfitt tímabil og nú þegar á seinni hluta tímabilsins líður hefur E22 einungis fært liðinu 8 stig í keppni bílasmiða. Í fyrra náði liðið í 315 stig. 28. september 2014 21:00 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Formúla 1 snýr aftur til Afríku Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Sjá meira
Bílskúrinn: Hitinn og hasarinn í Singapúr Þá er komið að því að skoða hvað er annað að frétta frá Singapúr en framúrakstur Lewis Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna. 24. september 2014 06:00
Max Verstappen sá yngsti frá upphafi Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag. 30. september 2014 15:00
Ricciardo: Lokakeppnirnar munu sanna hvor er hraðari Daniel Ricciardo hjá Red Bull telur að síðustu fimm keppnir tímabilsins muni skera úr um hvor ökumanna liðsins er hraðari, hann sjálfur eða fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel. 1. október 2014 21:30
Vettel: Akstursstíll skýrir lélegt gengi Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel segir að ósamræmi milli aksturseiginleika RB10 bílsins og eigin akstursstíls útskýra hvers vegna illa hefur gengið í ár. 25. september 2014 22:30
Lotus lofar bótum og betrun á næsta ári Lotus liðið hefur átt erfitt tímabil og nú þegar á seinni hluta tímabilsins líður hefur E22 einungis fært liðinu 8 stig í keppni bílasmiða. Í fyrra náði liðið í 315 stig. 28. september 2014 21:00