Íslendingar ferðast helst til Köben, London og Alicante Kjartan Atli Kjartansson skrifar 3. október 2014 14:33 Köben, London, Alicante.
Íslendingar ferðast helst til Kaupmannahafnar, London, Alicante og til Barcelona. Þetta kemur fram í tölum frá vefsíðunni DoHop. Á vefnum er hægt að bóka flugferðir með hinum ýmsu flugfélögum, hvort sem um beint flug eða tengiflug er að ræða.Hér má sjá hvert Íseldningar flugu helst.Fyrirtækið geymir upplýsingar um brottfarastað og áfangastað auk annarra upplýsinga, á borð við hótelbókanir og leigu á bílaleigubílum. Þannig getur fyrirtækið gefið nokkuð skýra mynd yfir ferðahegðun Íslendinga, sem nota vefinn. Í tölum frá fyrirtækinu kemur fram að 150 þúsund manns hafi notað íslensku útgáfuna af DoHop vefnum. Þeir sem bóka flug til Kaupmannahafnar bókar sjaldnar hótel með fluginu en þeir sem fljúga til London, en flestir sem bóka hótel í gegnum vefsíðuna gista í London. Mikill fjöldi gistir einnig í Berlín, en hún er í þriðja sæti yfir þær borgir sem Íslendingar bóka helst hótel í, í gegnum vefsíðuna, á eftir Kaupmannahöfn. Flestir sem bóka bílaleigubíla í gegnum vef DoHop ferðast til Bandaríkjanna og Danmerkur, auk þess sem spænska borgin Alicante er vinsæl þegar það kemur að leigu á bílum. Í upplýsingum frá fyrirtækinu kemur fram að tíu þúsundasti bíllinn var leigður í sumar í gegnum vef fyrirtækisins. DoHop er tíu ára fyrirtæki, sem heldur úti 25 vefsíðum á hinum ýmsu tungumálum, þar sem hægt er að bóka flug, hótel og bílaleigubíla.Hér má sjá hvar flest hótelin voru bókuð.Hér má sjá hvert þeir sem bókuðu bílaleigubíla flugu. Kaupmannahöfn og Billund eru vinsælar þegar það kemur að bílaleigubílum. Orlando og Boston líka.Hér má sjá hvernig gistingu Íslendingar völdu sér í gegnum DoHop.
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira