Viðskipti innlent

Visa korthafar eyddu fimmtán prósentum meira í útlöndum

Samúel Karl Ólason skrifar
Heildarveltuaukning Visa kreditkorta í júlí var 5,7 prósent miðað við júlí í fyrra. Innanlands var aukningin 4,1 prósent en 15,3 prósent í útlöndum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

Aukning í áfengisverslunum var 4,3 prósent. Þá minnkaði velta Visa kreditkorta í kaupum á eldsneyti. Veltan í matvöru og stórverslunum jókst um hálft prósent.

Töluverð aukning varð í ferðum íslendinga til útlanda en bæði Icelandair og WOW air settu met í fjölda farþega í júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×