Ber um allt land Birta Björnsdóttir skrifar 12. ágúst 2014 20:00
Nú fara margir að draga fram berjatínurnar og huga að berjum og þá er forvitnlegt að vita hvar besta berjasprettan er. Þorvaldur Pálmason, kennsluráðgjafi á menntavísindasviði Háskóla Íslands, er mikill berjaáhugamaður og hann segir sprettuna besta á norður- og austurlandi hvað aðalbláberin varðar. „Á norðanverðu Snæfellsnesi og í Dölunum er einnig hægt að komast í góða bláberjasprettu, en bestu fréttirnar eru sannarlega á norður- og austurlandi hvað aðalbláberin varðar. En krækiber er að finna svo til hvar sem lyng er að finna á landinu. Það sagði mér einn suður með sjó að þar væri nóg að fara út á inniskónum til að komast í gott krækiberjaland," segir Þorvaldur. Góðviðrið á suðversturhorninu undanfarna daga gæti þó haft áhrif á bláberjasprettu og mögulegt að hún taki við sér á næstu dögum. Þorvaldur heldur úti heimasíðunni berjavinir.com, ásamt bróður sínum Konráði. Þar safna þeir saman fróðleik um berjasprettu, nýtingu berja og fjölmargt annað og hvetja sem flesta til að fylgjast með á heimasíðunni og á facebook. Og Þorvaldur segir berin vera vannýtta auðlind. „Krækiberin fara svolítið halloka þegar rætt er um ber, en þau koma næst á eftir aðalbláberjum þegar kemur að hollustu. Þau eru stútfull af andoxunarefnum og fleiri vítamínum og þau má finna um land allt." Einhverjar reglur gilda þó fyrir þá sem hyggjast tína ber. „Á lögbýlum er óheimilt að týna innan landamerkja en á óræktuðu landi á lögbýlum má hver sem er tína uppí sig eins og maður segir,” segir Þorvaldur en hann segir að það færist í vöxt að landeigiendur leigi út landsvæði sín til berjatínslu.
Mest lesið Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Innlent Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Innlent Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Innlent Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Innlent Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Erlent Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Innlent Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Innlent Inga vill helst fjármálaráðuneytið Innlent Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Erlent Fleiri fréttir Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Fjórar snyrtistofur sektaðar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar Ákvörðunin skref í rétta átt Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Óttast að enginn hvalur verði veiddur þrátt fyrir leyfið Fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt Hvalveiðar heimilaðar og gosmóða yfir höfuðborginni Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar Siðanefnd sýknar Halldór og Vísi af kæru Arnars Þórs Rafmagnsleysi í Kópavogi og Fossvogi Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Kennurum án kennsluréttinda fjölgar Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju Inga vill helst fjármálaráðuneytið Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar Spáir sól um allt land í vikunni 800 nýjar íbúðir byggðar á Ásbrú Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni Ráðherra hafi ekki mátt láta rannsaka meðferðarheimilið Efast um heimild ráðherra til rannsóknar Sjá meira