500 konur yfir fimmtugu án atvinnu til lengri tíma Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 21. júlí 2014 11:00 „
Því lengur sem fólk er atvinnulaust, því erfiðara getur reynst að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Því er ráðgjöf, vinnumarkaðsaðgerðir og starfsendurhæfing mikilvægur þáttur í þjónustu við atvinnulausa,“ segir Karl Sigurðsson, vinnumarkaðssérfræðingur hjá Vinnumálastofnun. Karl segir að konum sem orðnar eru fimmtugar eða eldri reynist sérstaklega erfitt að finna nýja vinnu missi þær vinnuna. Nú eru rúmlega 500 konur fimmtugar eða eldri skilgreindar langtímaatvinnulausar, þar af hafa rúmlega 330 verið á atvinnuleysisskrá í meira en ár. Karlarnir eru talsvert færri, nú eru um 400 karlar eldri en fimmtugt skráðir langtímaatvinnulausir. Rúmlega sex þúsund manns voru skráðir án vinnu í júní, í sama mánuði í fyrra voru atvinnulausir á skrá rúmlega 900 fleiri.Langtímaatvinnulausum fjölgaði um tíu prósent á skrá Vinnumálastofnunar frá því í janúar og þangað til í júní, eða úr 42 prósentum í 52 prósent. Langtímaatvinnulausir eru skilgreindir þeir sem hafa verið án vinnu í sex mánuði eða lengur. Langtímaatvinnulausum hefur þó fækkað um tæplega tvö hundruð á tímabilinu en þar sem atvinnulausum fækkaði enn meira urðu langtímaatvinnulausir hærra hlutfall af heildinni. Langflestir langtímaatvinnulausra fá vinnu í gegnum átaksverkefni á vegum hins opinbera auk þess sem fjöldi fær vinnu í gegnum vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. Samkvæmt könnun sem var gerð í lok síðasta árs meðal einstaklinga sem ekki voru lengur skráðir atvinnuleitendur en höfðu verið skráðir langtímaatvinnulausir á árunum 2009 til 2013 voru sex af hverjum tíu komnir í vinnu. Tíu prósent þeirra voru í námi, fimm prósent voru í vinnu samhliða námi. Sautján prósent kváðust enn í atvinnuleit, sex prósent voru farin af vinnumarkaði vegna aldurs, örorku eða langtímaveikinda. Ætla má að um tvö þúsund manns klári bótarétt sinn á þessu ári. Karl segir að í september á síðasta ári hafi orðið skipulagsbreytingar hjá Vinnumálastofnun sem feli í sér að þeir sem eru langt komnir með bótaréttinn fái aukna ráðgjöf og vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira