Já mun áfrýja akvörðun Samkeppniseftirlitsins Stefán Árni Pálsson skrifar 7. nóvember 2014 13:36 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já.
Samkeppniseftirlitið hefur í dag tilkynnt um ákvörðun sína þess efnis að sekta Já um 50 milljónir króna. Það er byggt á þeim forsendum að Já hefði átt að veita þeim aðilum er hyggðu á samkeppni við félagið aðgang að gögnum um símanúmer með 97% afslætti frá innkaupsverði því sem Já keypti sömu upplýsingar af símafyrirtækjunum. „Við erum forviða á þessari niðurstöðu, þessi ákvörðun er einsdæmi í Evrópu og okkur algjörlega óskiljanleg. Ekkert sambærilegt félag og Já í Evrópu ber kvaðir eins og þær sem íslenska Samkeppniseftirlitið hefur nú lagt á Já. Samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins áttum við að kaupa gögn á 100% verði af símafyrirtækjunum en selja þau aftur á 3%. Það er öllum fyrirtækjum í lófa lagt að semja beint við símafyrirtækin líkt og aðilar hafa þegar gert – en hver gengur til slíkra samninga þegar þeim er gert kleift að kaupa gögnin á undirverði af okkur?,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, í tilkynningu sem Já hefur nú sent frá sér. Þar kemur einnig fram að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gangi þvert á fyrri niðurstöðu Úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Nefndin hafi tekið undir sjónarmið Já um að það sé fjarskiptafyrirtækjanna sem úthluta símanúmerum að veita heildsöluaðgang að slíkum gögnum. Tvær eftirlitsstofnanir hafa þannig komist að sitthvorri niðurstöðunni í málinu. Já hefur boðið gögnin til endursölu samkvæmt verðskrá sem kynnt var Samkeppnisstofnun árið 1998 án athugasemda, því vekur furðu að sama stofnun komist nú að annarri niðurstöðu. „Við höfnum því alfarið að Já hafi misbeitt meintri markaðsráðandi stöðu sinni á þessum markaði. Við höfum aldrei neitað neinum um aðgang að gagnagrunni okkar og verðskráin miðast við raunkostnað. Við munum að sjálfsögðu áfrýja málinu til úrskurðarnefndar samkeppnismála og dómstóla ef þess þarf,“ segir Sigríður Margrét enn fremur.
Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Sjá meira