Viðskipti innlent

Áhugi fyrir meiri orku á Grundartangasvæðið

Samúel Karl Ólason skrifar
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra spennusetti nýtt launaflsvirki Landsnets við Grundartanga í gær.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra spennusetti nýtt launaflsvirki Landsnets við Grundartanga í gær. Vísir/Vilhelm
Nýtt launaflsvirki Landsnets á Klafastöðum við Grundartanga var formlega tekið í notkun þegar Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráherra spennusetti virkið í gær.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að þetta sé stærsta einstaka verkefni Landsnets á liðnum árum og heildarkostnaður við verkefnið hafi numið rúmum tveimur milljörðum króna. „Launaflsvirkið bætir verulega rekstur raforkuflutningskerfis Landsnets, eykur afhendingaröryggi og gerir Landsneti kleift að flytja meiri orku inn á Grundartangasvæðið.“

Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir áhuga hjá bæði núverandi notendum og nýjum aðilum á að fá afhenta meiri orku á Grundartanga. „Við höfum ekki fyrr en nú verið í stakk búin til að sinna þeim óskum.“

Uppsetning launaflsvirkisins er fyrsta skrefið í endurskipulagningu orkuafhendingar Landsnets á Grundartanga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×