Viðskipti innlent

Ungir forritarar fá að heimsækja CCP

Bjarki Ármannsson skrifar
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, og Þórunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Skema.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, og Þórunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Skema. Mynd/Aðsend
Fyrirtækin Skema og CCP hafa undirritað samstarfssamning um reglulegar heimsóknir barna á aldrinum sex til sextán ára í höfuðstöðvar CCP að Grandagarði í Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skema. Þar segir markmiðið með samstarfinu annars vegar vera það að kynna möguleg atvinnutækifæri fyrir tæknifólki og forriturum framtíðarinnar og að styrkja upplýsingatækniðnaðinn á Íslandi með öflugu samstarfi og uppbyggilegum verkefnum.

Fyrirtækið Skema var stofnað árið 2011 og miðar að því að kenna börnum forritun á unga aldri. Hópur barna sem setið hefur námskeið hjá fyrirtækinu hefur í lok hvers námskeiðs fengið tækifæri til að heimsækja höfuðstöðvar CCP. Nokkur hundruð börn hafa þegar heimsótt höfuðstöðvarnar á vegum Skema og stefnir í að hundruð til viðbótar fái til þess tækifæri.

Næstu heimsóknir fara fram 26. og 28. maí og er nú þegar fullt í þær báðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×