Viðskipti innlent

Framhaldsskólanemar finna flösku nýtt notagildi

Mynd / Gunnar Cortes og Ásgeir Jónasson
Hugmyndasamkeppnin Snilldarlausnir Marel 2014 er hafin. Keppnin gengur út á það að framhaldsskólanemar finna einföldum hlut aukið virði með nýju notagildi.

Þetta árið er flaska hlutur ársins. Notagildið eiga nemendur að taka upp á myndband og senda í keppnina.

Vegleg verðlaun eru í boði, en andvirði verðlauna er um 400.000 krónur. Má þar nefna iPad mini frá iSímanum, 100.000 krónur í peningum ásamt gjafakörfu frá Ölgerðinni fyrir Snilldarlausnina 2014.

Skilafrestur er til mánudagsins 3.mars en nánari upplýsingar má finna á heimasíðu keppninnar.

Hér að neðan má sjá kynningarmyndband fyrir keppnina sem Gunnar Cortes, Viktor Smári Ágústuson og Ásgeir Jónasson settu saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×