Viðskipti innlent

Vestmannaeyingar eru skattakóngar Íslands

Jóhannes Stefánsson skrifar
Vestmannaeyingar eru með með hæstu tekjur allra landsmanna.
Vestmannaeyingar eru með með hæstu tekjur allra landsmanna. Vísir/Stefán
Vestmannaeyingar greiddu liðlega hálfa milljón hver í tekjuskatt árið 2012. Íbúar Borgarfjarðarhrepps greiddu eingöngu um 116.000 krónur á mann í tekjuskatt, en einungis 131 skráðir íbúar voru í sveitarfélaginu það ár.

Þetta kemur fram í frétt á t24.is, sem er unnin upp úr svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Óla Björns Kárasonar, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Vestmannaeyingar greiddu nánar tiltekið 521.309 krónur hver að meðaltali en skammt á hæla þeirra koma íbúar Garðabæjar sem greiddu 509.425 krónur hver.

Tekjulægstu einstaklingarnir í sveitarfélagi þar sem yfir 1.000 manns eru skráðir til heimilis búa í Húnaþingi Vestra. Þar greiddi meðalmaðurinn 186.230 krónur hver í tekjuskatt árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×