Embætti Seðlabankastjóra laust til umsóknar Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júní 2014 11:21 Staða Más Guðmundssonar hefur nú verið auglýst. Visir/Anton
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur auglýst embætti seðlabankastjóra Seðlabanka Íslands laust til umsóknar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu sem send var út í dag en umsóknarfrestur er til föstudagsins 27. júní 2014. Fjármála- og efnahagsráðherra skipar seðlabankastjóra Seðlabanka Íslands til fimm ára í senn og aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra tvisvar sinnum. „Seðlabankastjóri skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,“ eins og fram kemur í tilkynningunni Már Guðmundsson hefur verið seðlabankastjóri frá miðju ári 2009 og rennur skipunartími hans út 20. ágúst næstkomandi. Fjármála- og efnahagsráðherra tilkynnti í febrúar síðastliðnum að endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands stæði fyrir dyrum og var stofnaður starfshópur í kjölfarið. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafði gert því skóna um miðjan febrúar, í þættinum Sunnudagsmorgunn á RÚV, að seðlabankastjórum yrði jafnvel fjölgað um tvo. Slíkar breytingar á lögum um Seðlabankann hafa ekki verið gerðar enn og því verður nýr seðlabankastjóri, Már Guðmundsson eða annar, ráðinn á grundvelli gildandi laga sem segja til um að Seðlabankinn sé með einn seðlabankastjóra sem skipaður er sem fyrr segir til fimm ára.
Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira