Applicon vann alþjóðlega nýsköpunarkeppni Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 3. mars 2014 09:05 Verðlaunaféð nam 80 þúsund evrum. Vísir/Nýherji
Applicon bar sigur úr býtum í alþjóðlegri nýsköpunarkeppni SAP í Þýskalandi þar sem 40 fyrirtæki víðs vegar að úr heiminum tóku þátt. SAP er leiðandi í framleiðandi á viðskiptahugbúnaði í heiminum í dag. Verðlaunaverkefnið, sem var lagt fyrir dómnefnd SAP, byggist á nýrri tegund af gagnagrunni fyrir bankakerfi SAP. „Gagnagrunnurinn geymir öll gögn í minni og getur náð 10 þúsund sinnum meiri hraða auk þess að einfalda kerfishögun og lækka kostnað,“ segir Ingimar G. Bjarnason, framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi, í tilkynningu frá Nýherja. Hann segir að lausnin hafi þróast út frá SAP HANA gagnagrunni, sem spáð er að verði alls ráðandi á markaði innan skamms tíma, en ennfremur sé lausnin tengd við skýrslulausn frá SAP Business Objects. Verðlaunaféð nam 80 þúsund evrum og auk þess hlýtur Applicon aðstoð frá sérfræðingum SAP við að ljúka við gerð verkefnisins. Ingimar segir að verðlaunaféð muni nýtast við að ljúka við þróun á gagnagrunninum en ekki sé síður mikilvægt að njóta aðstoðar sérfræðinga SAP sem muni víkka þekkingu og reynslu Applicon. Hann segir að félagið hafi á síðustu 2 árum lagt mikla áherslu á nýsköpun, en í dag fari um 20% af veltu þess í þróun og þekkingaröflun. „Okkar hlutverk felst í að sinna nýsköpun enda breytingar miklar og örar á því sviði sem við störfum. Árangurinn í keppninni er staðfesting á því að við erum á réttri braut,“ segir Ingmar. Applicon á Íslandi sérhæfir sig í ráðgjöf, þjónustu og þróun lausna fyrir SAP, Vigor og Microsoft hugbúnað. Hjá því starfa 50 manns. Félagið er í eigu Nýherja.
Mest lesið Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira