Sá eini sem getur komið í veg fyrir stríð núna er Ólafur Ragnar Andri Þór Sturluson skrifar 3. mars 2014 18:02 Félagarnir tveir. Óli og Pútti.
Hvaða vesen er á honum félaga Pútín, forseta Rússlands, þessa dagana? Ólafur Ragnar er nýbúinn að ræða við hann og kappinn ætlar bara að ráðast inn í Úkraínu. Það fór svo vel á með þeim um daginn. Maður fékk svona á tilfinninguna að þessir tveir sterku leiðtogar, Pútín og Ólafur, ættu í svipuðu vinasambandi og Kim Jong-un og Dennis Rodman. Rússland hefur gefið Úkraínu frest til kl 03:00 í nótt. Ég vona að Ólafur Ragnar sé á leið út á flugvöll núna, fljúgi til Rússlands og tali Pútin til. Ef einhver getur það þá er það okkar eigin Dalai Lama Norðursins. Það væri við hæfi að hann hitti Pútín í „höfuðborg Norðurslóða“ Pétursborg og tjónkaði við hann þar. Ólafur hefur nú stöðvað margar hamfarirnar. Ef einhver getur komið í veg fyrir þetta stríð þá er það hann.
Harmageddon Mest lesið Tíu ástæður fyrir því að hugmynd Vigdísar er rosalega vond Harmageddon Læknar með hjálp andanna Harmageddon Nýtt myndband með Leoncie og Shades of Reykjavík Harmageddon Ofsóttur af Boko Haram - óvelkominn á Íslandi Harmageddon Hljómsveitin Filter í viðtali við X-ið 977 Harmageddon Útgáfutónleikar Reykjavík! Harmageddon Nýju myndbandi með Hljómsveitt lekið á netið Harmageddon Hringdi í aðdáanda á sviði Harmageddon Smitsjúkdómar í Evrópusambandinu Harmageddon Strangheiðarlegur og hafður fyrir rangri sök Harmageddon