Neitar að hafa ráðist á barnsmóður sína 19. september 2014 12:03 Við aðalmeðferðina í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. vísir/gva
Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara á hendur 29 ára gömlum karlmanni fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gegn barnsmóður sinni við Perluna í Öskjuhlíð í maí síðastliðnum. Maðurinn neitaði sök í málinu. Honum er gefið að sök að hafa brotið hliðarrúðu bíls hennar, dregið hana úr bílnum, slegið hana ítrekað í andlit og höfuð, hrint henni í jörðina þar sem hún lá í jörðinni og sparkað ítrekað í andlit hennar og höfuð. Maðurinn gekkst við að hafa brotið rúðuna en segist ekki hafa ráðist á hana. „Hún rýkur þá út [úr bílnum] brjáluð og rífur í mig. Ég fleygi henni í gras og þrykki bíllyklinum á eftir henni og keyri burt. Ég hrinti henni ekki á malbik. Ég hrinti henni í grasið,“ sagði maðurinn í vitnaleiðslum og bætti við að hún hefði verið í annarlegu ástandi. „Hún kýldi mig og sparkaði í mig og vörin mín sprakk og ég fékk blóðnasir.“ Sögur þeirra samrýmdust þó ekki og hafði hún aðra sögu að segja. Gekkst hún ekki við að hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna og sagðist ekki hafa ráðist á barnsföður sinn.„Ég panikka“ „Ég sé hann er mjög reiður og ég panikka. Ég reyni að læsa hurðinni og þá brýtur hann farþegarúðuna með olnboganum. Tekur þá í hárið mitt og kýlir mig á fullu. Lemur mig, hendir mér á húddið og heldur áfram að lemja mig og ég sparka í hann,“ sagði konan. „Svo keyrði hann burt og ég stóð upp í öllu blóðinu, fann ekki símann minn og ekki bíllykla og sat heillengi í bílnum í sjokki,“ sagði hún.Í miklu uppnámi Rúmlega klukkustund síðar gekk hún á nálæga bensínstöð og hringdu starfsmenn bensínstöðvarinnar á lögreglu. Var hún flutt á slysadeild þar sem hlúð var að sárum hennar. Lögreglumaður sem kom á vettvang og bar vitni í málinu sagði hana hafa verið í miklu uppnámi, grátandi og blóðuga. Af atlögunni hlaut konan mar og blæðingu við hvirfil og aftan á hnakka, sprungur á efri og neðri vör, bólgur og eymsli yfir nefi, eymsli undir vinstri kinnboga og yfir hægri kjálkalið, punktblæðingar á baki, mar við vinstra herðablað, á hægri síðu og framan á vinstri sköflungi og eymsli yfir vinstri ökkla og á hægra læri. Brot mannsins telst varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og krefst konan að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan fer fram á 800 þúsund í bætur auk vaxta. Að loknum vitnaleiðslum var aðalmeðferð málsins frestað og verður framhaldið síðar.
Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira