Sex af hverjum tíu hótelum í borginni skiluðu tapi 2012 Haraldur Guðmundsson skrifar 24. apríl 2014 07:30 Gert er ráð fyrir að hótelherbergjum muni fjölga um 30 prósent til ársloka 2015. Vísir/Daníel
Hótel á höfuðborgarsvæðinu voru að meðaltali rekin með tapi á tímabilinu 2009-2012. Einungis 40 prósent þeirra skiluðu hagnaði árið 2012 samanborið við 70 prósent hótela á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í nýrri úttekt KPMG á arðsemi í hótelrekstri hér á landi sem fyrirtækið kynnti í gær. Þar er greint frá afkomu hótelgeirans og þeirri staðreynd að helmingur hótela höfuðborgarsvæðisins var með neikvætt eigið fé árið 2012 samanborið við 43 prósent á landsbyggðinni. Á sama tíma og afkoma hótela á höfuðborgarsvæðinu var að jafnaði léleg var herbergjanýting þar talsvert betri en annars staðar á landinu. „Það er alveg ljóst að ef við ætlum að taka á móti þessum mikla fjölda ferðamanna þá þarf að byggja upp og kosta til og þá eru menn oft með neikvætt eigið fé til að byrja með. En við erum að sjá aukningu og nýtingin er að batna,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). „Það að byggja upp og fjölga hótelum kallar á miklar fjárfestingar yfir skamman tíma. Lykilatriðið er þessi fjölgun ferðamanna yfir allt árið sem býr til grundvöll fyrir bætt rekstrarumhverfi og þá verður hægt að horfa til þeirra markhópa sem gefa meira af sér,“ segir Helga. Í úttekt KPMG er bent á að mun fleiri hótelrekendur á höfuðborgarsvæðinu leigja húsnæði undir starfsemi sína en kollegar þeirra á landsbyggðinni. Samkeppni um vel staðsett húsnæði í góðu ásigkomulagi sé mikil og leiguverð því hærra en annars staðar. KPMG telur háan húsnæðiskostnað og meiri verðsamkeppni í borginni líklegar ástæður fyrir verri afkomu hótela á höfuðborgarsvæðinu. „Þar er einnig búið að byggja mikið af þriggja og fjögurra stjörnu hótelum sem kalla á meiri fjárfestingar en þær framkvæmdir sem oft hefur verið farið í á landsbyggðinni. Við erum að gera okkur gildandi sem heilsársáfangastað og þá þarf að kosta til,“ segir Helga.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira