Viðskipti innlent

Kauphöllin samþykkir Sjóvá

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Almennt útboð á 23 prósenta hlut í Sjóvá hefst á morgun.
Almennt útboð á 23 prósenta hlut í Sjóvá hefst á morgun. Vísir/Daníel
Kauphöllin hefur samþykkt umsókn stjórnar Sjóvár-Almennra trygginga hf. um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar.

Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga á NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag.

Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti Sjóvár á Aðalmarkaði verði 11. apríl 2014. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×