Viðskipti innlent

Einar Örn lætur af störfum sem forstjóri Skeljungs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einar settist í forstjórastól Skeljungs í maí 2009.
Einar settist í forstjórastól Skeljungs í maí 2009. Vísir/GVA
Einar Örn Ólafsson hefur tilkynnt stjórn Skeljungs hf. að hann óski eftir að láta af störfum sem forstjóri félagsins en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skeljungi.

Hefur stjórnin komist að samkomulagi við Einar um að hann starfi áfram sem forstjóri og verði stjórn Skeljungs til ráðgjafar þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Einar Örn Ólafsson hefur verið forstjóri Skeljungs frá árinu 2009. Undanfarin ár hefur hann ásamt öðrum stjórnendum endurskipulagt rekstur fyrirtækisins og unnið að stefnumótun þess til framtíðar.

Því verkefni er að ljúka og verður verkefni nýrra eigenda að stíga næstu skref með nýjum forstjóra.

„Ég tel þetta vera heppilegan tímapunkt til að standa upp úr forstjórastól Skeljungs. Mitt verkefni var að treysta stoðir félagsins til langs tíma og leiða stefnumótunarvinnu þess.  Staða fyrirtækisins er sterk og stefnumótunarvinna á lokametrum,“ segir Einar Örn Ólafsson.

Nú sé tímabært að líta til annarra verkefna, sem hafa staðið honum nærri.

„Ég hef ekki getað sinnt sem skyldi vegna anna. Það hefur verið lærdómsríkt að stjórna svona öflugu rekstrarfélagi með frábæru samstarfsfólki. Ég tek þá reynslu með mér á nýjan vettvang og óska stjórn og starfsfólki Skeljungs alls hins besta í framtíðinni,“ segir Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×