Sænskt fyrirtæki vill endurvinna úr skipastáli á Dalvík Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 6. ágúst 2014 00:01 Hér er unnið við Kambaröstina í Hafnarfirði. Eflaust verða það örlög margra skipa að verða að nýtanlegum málmum hjá T.S. Shipping á Dalvík. fréttablaðið/gva
Sænska fyrirtækið T.S. Shipping, sem endurvinnur stál frá úr sér gegnum skipum, hefur lýst yfir áhuga á að koma upp starfsemi á Dalvík. Ef af verður mun það hafa gríðarlega áhrif í sveitarfélaginu en í viðtali sem DB blaðið, bæjarblað Dalvíkinga, tók í júní síðastliðnum við Svanfríði Ingu Jónasdóttur, þáverandi sveitarstjóra, myndu um 150 manns fá vinnu hjá fyrirtækinu þar fyrir norðan. Yrðu þau fyrir bæði kyn og fólk með margvíslega menntun. Níu manna sendinefnd frá fyrirtækinu fór norður í júní og ræddi við sveitarstjórann, tæknimenn og lögfræðing. Heimildir Fréttablaðsins herma að fyrirtækið gæti verið að leita hófanna einnig víðar á Eyjafjarðarsvæðinu og eins á Austfjörðum. Bjarni Theódór Bjarnason, núverandi sveitarstjóri, segir málið vera á algjöru frumstigi. „Ég er nýkominn um borð og nú eru allir í fríi en svo í september munum við eiga viðræður við fyrirtækið og þá munu báðir aðilar eflaust fá svör við þeim fjölda spurninga sem enn er ósvarað.“ Fyrirtækið mun aldeilis ekki sitja auðum höndum hér á landi en í viðtali DB blaðsins kemur fram að þegar framleiðslan verður komin í fullan gang muni hún nema 560 til 600 þúsund tonnum af endurunnu stáli á ári, auk annarra efna. Það gæti hæglega samsvarað sextíu skipum á ári af ýmsum stærðum. T.S. Shipping sóttist eftir lóð á Grundartanga á sínum tíma en stjórn Faxaflóahafna hafnaði þeirri umleitan í september í fyrra, á þeim forsendum að framkvæmdirnar kölluðu á miklar lóðaframkvæmdir, breytingar á deili- og aðalskipulagi og ekki lægi nægilega ljóst fyrir, að mati hafnarstjórnar, hver umhverfisáhrifin yrðu. Svanfríður segir þó að þau ættu að vera lítil og í viðtalinu segir hún starfsemina mengunarfría og hávaðamengun í lágmarki. Um starfsemina sagði hún enn fremur: „Gerðar verða þurrkvíar sem skipin eru dregin upp í, tæki og vélar hreinsuð úr þeim og seld í netsölu um allan heima, en geymd í skemmu á starfsstað þangað til þau seljast. Síðan eru skrokkarnir hlutaðir í sundur og efnið sett í endurvinnsluferla, hvort sem það er stál, aðrir málmar eða önnur efni.“
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira