Farþegamet slegið í hverjum mánuði frá ársbyrjun 2012 Samúel Karl Ólason skrifar 8. apríl 2014 17:31 Vísir/GVA „
Mánuð eftir mánuð hefur hvert metið rekið annað í fjöldatölum erlendra ferðamanna, eða allt frá því í ársbyrjun 2012,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þá má gera ráð fyrir að erlendum ferðamönnum muni fjölga um 20 prósent í það minnsta í ár. Þá segir að brottfarir erlendra ferðamanna frá landinu hafi verið 165 þúsund á fyrstu þremur mánuðum ársins og er það fjölgun upp á 35 prósent á milli ára. „Tölur Isavia um úthlutuð stæði yfir tímabilið 30. mars til 25. október, benda til þess að flugumferð um KEF verði 18% meiri á því tímabili en hún var á sama tímabili í fyrra.“ Miðað við það og að hófleg fjölgun verið einnig á síðustu tveimur mánuðum ársins má búast við 20 prósent fjölgun ferðamanna á milli ára. Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu komu um 16.600 ferðamenn til landsins með Norrænu í fyrra. Þá hefur ferðamönnum sem koma hingað til lands með skemmtiferðaskipum fjölgað hratt og Greining Íslandsbanka segir að sennilega verði þeir fleiri en 100 þúsund á árinu. Þeir skili þó þjóðarbúinu mun minni gjaldeyristekjum en aðrir ferðamenn. Einnig segir í Morgunkorninu að hlutfallslega hafi ferðamönnum fjölgað meira utan háannatíma og verulega hafi dregið úr árstíðasveiflu í ferðamannastraumi til landsins. Sé árinu skipt í þrjú tímabil, janúar – maí, júní – ágúst og september – desember, hefur aukningin verið mest á fyrsta tímabilinu. „Á milli áranna 2010 og 2013 fjölgaði erlendum ferðamönnum um 90% á fyrstu fimm mánuðum ársins, 52% yfir háannatímann og 86% á síðustu fjórum mánuðum ársins.“
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira