Hófleg hækkun hlutabréfa á næsta ári Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. nóvember 2014 12:00 IFS greining telur afar líklegt að Síminn verði skráður. Fréttablaðið/Stefán
Hækkun bréfa á íslenskum hlutabréfamarkaði verður hófleg að meðaltali á næsta ári, að mati ráðgjafafyrirtækisins IFS greiningar. Spáir fyrirtækið því að árshækkun þeirra gæti orðið á bilinu 3-9 prósent. Þetta kemur fram í greiningu á markaðnum sem fyrirtækið birti í gær. Þá telur fyrirtækið að næsta ár verði að líkindum þokkalegt hvað varðar fjölda nýrra félaga í Kauphöll, að minnsta kosti á aðallistann. Það er þó ekki ný saga að skráningar hafa hvert ár frá hruni verið fáar og færri en spáð var fyrirfram. IFS telur að einu félögin sem telja megi nær öruggt að komi á markað á árinu séu fasteignafélögin Reitir og Eik og Síminn. „Öll eru þau líkleg til að bjóða bréf í frumútboði eftir að ársreikningur 2014 liggur fyrir og áður en fyrri árshelmingur er allur. Ástæða er til að ætla að útboð félaganna verði fremur smá í sniðum og fyrst og fremst hugsuð til að ná tilætluðum fjölda hluthafa til að hljóta skráningu á aðallista og til að fá verðmyndun markaðar á hlutabréfin,“ segir í greiningunni. Þá segir að félagið Promens sé einnig hugsanlegur og títt ræddur kandídat. Talsverð óvissa ríki hins vegar um skráningaráform þess. „Seint á síðasta ári gáfu forsvarsmenn Promens það út að stefnt væri á skráningu fyrir lok árs 2014. Ekki er líklegt að það markmið náist úr þessu,“ segir í greiningunni.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Fleiri fréttir Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Sjá meira