Stórverkefni síðustu ára fóru 20-150 prósent fram úr áætlun Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. maí 2014 07:00 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, á haustfundi árið 2011 þar sem hann kynnti tölur um kostnað við gerð Kárahnjúkavirkjunar sem voru mun hærri en áður höfðu heyrst. Fréttablaðið/Stefán
Regla virðist fremur en undantekning að stórframkvæmdir fari fram úr kostnaðaráætlun. Oftar en ekki langt fram úr áætlunum. Þetta á við bæði hér á landi og erlendis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt Sigurðar Jóhannessonar hagfræðings í nýjasta tölublaði efnahagsritsins Vísbendingar. Sigurður tekur dæmi um sex íslenskar stórframkvæmdir frá undanförnum aldarfjórðungi, sem flestar voru umdeildar á sínum tíma. „Endanlegur kostnaður við þessi verkefni var frá 20 prósentum til 150 prósenta yfir kostnaðaráætlun,“ segir í grein hans, en tölurnar eru í sumum tilvikum hærri en í opinberu uppgjöri framkvæmdanna. Skoðaður er kostnaður við byggingu Hörpu, Ráðhúss Reykjavíkur, Höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur, og gerð Héðinsfjarðar- og Hvalfjarðarganga, auk Kárahnjúkavirkjunar.Sigurður JóhannessonNeysluverðsvísitala er notuð til að meta raunverðshækkun og leiðrétt vegna stórra kostnaðarliða sem stundum hafa ekki verið teknir með í reikninginn, svo sem loftræstingar, innréttinga eða búnaðar. Minnst var framúrkeyrslan frá áætlunum áður en framkvæmdir hófust vegna Héðinsfjarðarganga og Hvalfjarðarganga, 26 og 21 prósent. Mest var hún hins vegar vegna Kárahnjúkavirkjunar, 50-70 prósent og vegna byggingar Ráðhúss Reykjavíkur 110-150 prósent. Munurinn í báðum spám skýrist af því að í báðum tilvikum lágu fyrir tvær áætlanir um kostnað hvor frá sínu árinu. Í tilviki Ráðhússins gerði áætlun frá október 2007 ráð fyrir 750 milljónum í kostnað, en áætlun frá febrúar 1988 ráð fyrir 980 milljónum. Þá var í september 2001 gert ráð fyrir 1,2 milljarða dala kostnaði við gerð Kárahnjúkavirkjunar, en 1,1 milljarðs kostnaði í nóvember 2002. Í tilviki Kárahnjúkavirkjunar er um langhæstu upphæðirnar að ræða, en í krónum talið hljóðuðu áætlanirnar upp á 123 til 135 milljarða króna miðað við gengi dollars í gær. Endanlegur kostnaður var svo 2,3 milljarðar dala. Sigurður bendir á það í grein sinni að samkvæmt uppgjöri frá því snemma árs 2008 hafi kostnaður við ,,stærstu framkvæmd Íslandssögunnar“, Kárahnjúkavirkjun, aðeins farið sjö prósent fram úr áætlun. „Hér eru hins vegar notaðar kostnaðartölur sem Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar, sýndi á haustfundi fyrirtækisins 2011,“ segir hann. Farið hafi fram hjá flestum í umræðu sem fram fór í kjölfarið um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar að tölur Harðar um kostnað við verkið voru miklu hærri en áður höfðu heyrst. „Hann sagði að virkjunin hefði í heildina kostað 240 milljarða króna. Hækkunin frá tölum sem lagðar voru fram áður en ákveðið var að ráðast í verkið er um fimmtíu prósent umfram hækkun neysluverðs.“Mark var ekki tekið á varnaðarorðum Í grein Sigurðar Jóhannessonar er vitnað til rannsókna danska landfræðingsins Bent Flyvbjerg og samstarfsmanna hans. Í upphafi aldarinnar skoðuðu þeir 300 stórframkvæmdir í 20 löndum og í ljós kom að níu af hverju tíu fóru fram úr áætlunum, oft 50% meira og 100% framúrkeyrsla var ekki óalgeng. Þá var nýlega birt rannsókn á stíflum víða um heim þar sem þrjár af hverjum fjórum kostuðu meira en búist var við. Sigurður rifjar upp að þegar Kárahnjúkavirkjun var rædd á þingi veturinn 2003 hafi andstæðingar virkjunar hent rannsóknir Flyvbjergs á lofti og þingflokkur VG ályktað um málið á Alþingi. „Ekki verður séð að þingmenn annarra flokka á þingi hafi tekið undir þessi viðhorf. Þeim fannst ástæðulaust að endurskoða þá jákvæðu afstöðu sem þeir tóku til málsins þegar það kom fyrst fram.
Mest lesið Svona getur þú sagt Nei í vinnunni án þess að fá samviskubit Atvinnulíf Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Viðskipti innlent Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Samstarf Mun stýra tæknisviði Carbfix Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Engin hópuppsögn í apríl Viðskipti innlent Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Lífið samstarf Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Sjá meira