Lífið

Teipuðu Steve-O við vegg og skutu í hann flugeldum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Steve-O fastur við vegg.
Steve-O fastur við vegg. Mynd/Steve-O
Háðsfuglinn Steve-O, sem er þekktastur sem einn af meðlimum Jackass-gengisins, virðist engu hafa gleymt. Í gærkvöldi birti hann myndbönd á Facebook-síðu sinni og á Youtube-síðu sinni, þar sem vinir hans festa hann við vegg með límbandi.

Vinir hans skjóta síðan flugeldum í sjónvarpsstjörnuna. Steve-O virðist meiða sig mest þegar vinir hans taka límbandið af honum. Má heyra kappann emja og góla við það. 

Hér má sjá styttri útgáfuna af myndbandinu, en þá lengri má sjá neðst í fréttinni:

Steve-O ferðast nú um heiminn og skemmtir með uppistandi en hann varð fertugur í sumar. Auk þess að halda uppistand víðsvegar um heiminn heldur hann úti vefsíðum þar sem hann birtir grínmyndbönd sín. Steve-O var einnig kynnir í myndbandi um meðferð á dýrum, en Steve-O er það sem kallað er vegan; hann neytir engra dýraafurða.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×