Byggja tíu þúsund tonna frystigeymslu í Hafnarfirði Samúel Karl Ólason skrifar 4. nóvember 2014 16:33 „Markmið félagsins er að byggja upp öfluga þjónustumiðstöð fyrir sjávarútveginn staðsetta í Hafnarfirði.“ Vísir/GVA
Eimskip hefur ákveðið ráðast í byggingu á fullkominni tíu þúsund tonna frystigeymslu á athafnasvæði sínu í Hafnarfirði. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að ákvörðunin hafi verið tekin í ljósi þess að veruleg aukning hafi orðið í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem kalli á vaxandi frystigeymsluþjónustu. Þar að auki sé aukin eftirspurn eftir vöruhótelþjónustu fyrir frystar neyendavörur. Fyrir rekur Eimskip frystigeymsluna Fjarðarfrost sem rúmar um þrjú þúsund tonn, ásamt því að vera með ufangsmikla löndunarþjónustu fyrir sjávarútveginn auk tengdrar hliðarþjónustu. Eimskip hefur verið með starfsemi í Hafnarfirði frá árinu 1970. „Markmið félagsins er að byggja upp öfluga þjónustumiðstöð fyrir sjávarútveginn staðsetta í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarhöfn er vel staðsett og býður upp á góða aðstöðu fyrir útgerðir,“ segir í tilkynningunni. Áætlað er að framkvæmdir hefjist fyrir áramót og að fyrsti áfangi frystigeymslunnar verði tilbúinn til notkunar í sumar. Mögulegt verður að stækka geymsluna í áföngum um allt að 14 þúsund tonn í samræmi við þarfir viðskiptavina. „Með þessari ákvörðun er Eimskip að fylgja eftir þeirri þróun sem verið hefur til að geta þjónustað viðskiptavini sína enn betur en áður, enda er sjávarútvegurinn ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs og þjónusta við sjávarútveginn er mikilvæg stoð í rekstri félagsins.“Nýja frystigeymslan er til hægri á myndinni en til vinstri má sjá núverandi geymslu, Fjarðarfrost. Stækkunarmöguleikar felast í tengibyggingu á milli nýju og gömlu geymslunnar.Aðsend mynd
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira