Forritarar framtíðarinnar fá styrk Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. október 2014 10:27 Guðmundur Tómas Axelsson.
Veittir verða styrkir úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar í húsakynnum CCP að Grandagarði 8 klukkan tvö í dag. Styrkirnir verða afhentir í viðurvist kennara og barna frá þeim skólum sem hlutu styrkina að þessu sinni. Sjóðnum bárust alls 39 umsóknir í þessari úthlutun, flestar frá grunnskólum, eða 67%. Virði styrkjanna er samtals um fjórar milljónir króna. Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu fyrir nemendur. Styrkirnir skiptast að þessu sinni á milli fjögurra skóla: Smáraskóla, Kirkjubæjarskóla, Grunnskólans í Sandgerði og Grunnskóla Vestmannaeyja. Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar hóf starfsemi sína í byrjun árs 2014 og er megin hlutverk sjóðsins að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Skólar og sveitarfélög geta sótt um styrki úr sjóðnum til að efla tæknikennslu og notkun á tækni í skólastarfi og fá til þess þjálfun og tækjabúnað, allt eftir þörfum hvers og eins. Í tilkynningu segir að þetta sé í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en fyrri úthlutunin fór fram 21. febrúar síðastliðinn. Var þá úthlutað styrkjum að verðmæti fjórar milljónir króna. Samtals hefur því sjóðurinn úthlutað virði tæpra 8 milljóna króna í styrki til skóla á þessu ári. „Við erum mjög ánægð með þær viðtökur sem sjóðurinn hefur fengið og þann fjölda umsókna sem hafa borist. Við erum stolt af því að hafa náð að úthluta styrkjum að verðmæti 8 milljóna á fyrsta starfsári. Við höfum fengið til samstarfs við okkur rosalega flotta hollvini, bæði einkafyrirtæki sem og mennta- og menningarmálaráðuneytið sem sýnir okkur hvernig atvinnulífið og hið opinbera geta unnið saman og náð árangri,“ segir Guðmundur Tómas Axelsson, stjórnamaður í Forriturum framtíðarinnar.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira