Telja að hægt verði að fá meiri tekjur með sölu um sæstreng 29. október 2014 14:08 "Þetta lítur út fyrir að vera mjög spennandi mál fyrir íslenskan þjóðarhag,“ segir Gústaf Steingrímsson hjá hagfræðideild Landsbankans. Vísir/Vilhelm
Sæstrengur milli Íslands og Bretlands gæti skilað þjóðarbúinu um þrjátíu og fimm milljörðum á ári samkvæmt útreikningum hagfræðideildar Landsbankans. Greining hagfræðideildar á framkvæmdinni byggir meðal annars á skýrslu sem Hagfræðistofnun vann i samvinnu við Landsvirkjun. Greiningin miðast við að 800 megawatta strengur verði lagður á milli landanna og að um helmingur raforkunnar fáist úr jarðvarma, fjórðungur úr vatnsafli og fjórðungur úr vindorku. Hagfræðideild telur að það muni taka um 15 ár að greiða upp allan kostnað vegna sæstrengsins. Hreinn þjóðhagslegur ábati fyrir Ísland muni nema um 35 milljörðum króna á ári. Bankinn vísar í þessu samhengi á greiningu The European Network of Transmission System Operators for Electricity. Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans, ræddi málin í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Svona forsendur sem við gáfum okkur um hvaða verð væri hægt að fá í samningi við breska ríkið gefa mjög ásættanlegar tekjur og arðsemi af verkefninu,“ segir Gústaf. Gústaf segir að miðað við reikninga Hagfræðideildar sé mjög æskilegt að stjórnvöld skoði málið ofan í kjölinn. „Þetta lítur út fyrir að vera mjög spennandi mál fyrir íslenskan þjóðarhag.“ Aðspurður hvort betra sé að selja raforku til Bretlands um sæstreng heldur en í stóriðju sagði Gústaf: „Það er allavega mjög líklegt að við fengjum umtalsvert hærra verð fyrir raforku með því að selja hana í gegnum sæstreng en í stóriðju miðað við þá samninga sem gerðir hafa verið.“
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira