Lagði áherslu á að auka viðskipti við Brasilíu Stefán Árni Pálsson skrifar 16. október 2014 15:32 Gunnar Bragi með Rodrigo Tavares, yfirmanni skrifstofu alþjóðamála í Sao Paulo. mynd/aðsend
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ávarpaði í gær kynningarfund um útflutning sjávarafurða frá Íslandi til Brasilíu, sem Íslandsstofa stóð fyrir í Sao Paulo. Fundurinn var haldinn í tengslum við heimsókn Gunnars Braga til Brasilíu en meginmarkmið hans er að efla viðskiptaleg tengsl landanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Fyrr um daginn fundaði Gunnar Bragi með Rodrigo Tavares, yfirmanni skrifstofu alþjóðamála í Sao Paulo en fylkið, sem telur 43 milljónir, hefur undanfarin ár gert tvíhliðasamninga við ríki um einstök mál. Voru þeir sammála um að kanna ávinning af slíkum samningi en Tavares lýsti áhuga á samvinnu við Íslendinga í viðskiptamálum, sjávarútvegi, menningu og ferðamennsku. Viðskiptaráðið í Sao Paulo aðstoðaði við undirbúning kynningarfundarins en til hans var boðið brasilískum innkaupaaðilum á sjávarafurðum sem einnig gátu fundað með fulltrúum íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Frá Íslandi sóttu fundinn auk fulltrúa frá Íslandsstofu fulltrúar frá fyrirtækjunum Marel, Skinney-Þinganes, Vísi, Norlandia og Iceland Pelagic. Í ræðu sinni lagði Gunnar Bragi megináherslu á nauðsyn þess að auðvelda viðskipti milli landanna og að hann teldi góða möguleika á að auka enn viðskipti. Þar væri fríverslunarsamningur mikilvægt tæki. Gunnar Bragi upplýsti jafnframt að hann hefði á fundum með utanríkisráðherra og landbúnaðarráðherra landsins lagt til aukið samstarf og upplýsingagjöf um eftirlit með innflutningi á landbúnaðar- og sjávarafurðum. Útflutningur sjávarafurða til Brasilíu jókst töluvert á árunum 2012 og 2013 samanborið við fyrri ár. Þannig nam útflutningurinn yfir 780 millj. kr. árið 2012 og yfir 626 millj. kr. árið 2013, samanborið við útflutning á bilinu 340-370 millj. kr. á ári síðustu þrjú ár þar á undan. Langstærsti hluti útflutningsins, ríflega 70%, hefur verið á frystum ósöltuðum ufsaflökum. Innflutningur hefur hinsvegar verið meiri frá Brasilíu, helst súrál til álframleiðslu fyrir tæplega 45 milljarða.
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Sjá meira