Síldarvinnslan kaupir öll hlutabréf í Gullbergi Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2014 11:24 Seyðisfjörður. Vísir/Einar Bragi Bragason
Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á útgerðinni Gullbergi sem gerir út togarann Gullver og frystihúsinu Brimbergi á Seyðisfirði. Starfsfólk var boðað til fundar klukkan tíu. Fundað var fyrr í morgun með bæjarstjórn Seyðisfjarðar fyrr í morgun. Austurfrétt greindi fyrst frá í morgun.Á vef Síldarvinnslunnar segir að áfram verði gert út frá Seyðisfirði og áhersla lögð á að tryggja áframhaldandi framleiðslustörf tengd sjávarútvegi í byggðarlaginu, en fyrir rekur Síldarvinnslan fiskimjölsverksmiðju á Seyðisfirði. „Kaupin eru liður í að styðja við starfsemi Síldarvinnslunnar á Austurlandi. Með því að hafa útgerð og vinnslu á sömu hendi er traustari stoðum skotið undir heilsársstörf og atvinnulíf í byggðarlaginu. Það hefur verið stefna Síldarvinnslunnar að auka við sig bolfiskheimildir og breikka rekstrargrundvöll félagsins. Megináhersla síðustu áratugi hefur verið á veiðar og vinnslu uppsjávartegunda. Kaupin á Gullbergi eru í takt við áherslu stjórnenda Síldarvinnslunnar að fjölga grunnstoðum í rekstri félagsins. Gullver NS 12 er 674 tonna skuttogari, tæplega 50 metra langur og smíðaður í Noregi árið 1983. Aflamark togarans á yfirstandandi fiskveiðiári, 2014-2015, nemur 2.855 þorskígildistonnum,“ segir í frétt Síldarvinnslunnar. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Sjá meira