Formúla 1

Jules Bianchi er kominn í öndunarvél og líðan hans stöðug

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Bianchi fyrir kappaksturinn í morgun.
Bianchi fyrir kappaksturinn í morgun. Vísir/Getty
Franski ökumaðurinn Jules Bianchi missti stjórn á Marussia bíl sínum undir lok japanaksa kappakstursins í morgun. Hann lenti á vinnutæki sem var að fjarlægja annan bíl sem farið hafði út af á sama stað.

Strax varð ljóst að um alvarlegt slys var að ræða. Sjúkrabíll fór með Bianchi á næsta sjúkrahús sem gat tekið á móti honum. Fögnuður annarra ökumanna eftir keppnina var nánast enginn.

Allir biðu á milli vonar og ótta eftir fréttum af ökumanninum. Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) gaf út tilkynningu skömmu eftir að keppninn hafði verið stöðvuð.

„Ökumaðurinn er ekki með meðvitund, hann hefur verið fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl,“ sagði Matteo Bonciani talsmaður FIA.

„Frekari fregnir munu koma síðar - í augnablikinu getum við ekkert sagt. Við munum færa ykkur fréttir um leið og við getum,“ bætti hann við.

Faðir ökumannsins hefur staðfest að hann varð fyrir alvarlegum höfuðáverka og er í aðgerð. Ný tilkynning frá FIA staðfestir þetta.

„Keppnin byrjaði of snemma og endaði of seint, við hefðum átt að vera löngu búin að blása hana af. Fyrst og fremst hef ég áhyggjur af Jules,“ sagði Felipe Massa sem var meðal margra ökumanna sem lýstu áhyggjum sínum af líðan Bianchi eftir keppnina.

Bianchi er kominn úr aðgerð og hefur verið færður á gjörgæsludeild.

Líðan Binachi er stöðug, hann er í öndunarvél . Prófessor Gerard Saillant, sem var ráðgjafi Schumacher fjölskyldunnar á fyrstu stigum meðferðar Michael Schumacher, er væntanlegur á Mie sjúkrahúsið, þar sem Bianchi er.

Saillant er einn færasti bæklunarskurðlæknir heims. Hann er góðvinur Jean Todt, forseta FIA og er væntanlegur í dag.

Fjölskylda ökumannsins er komin á sjúkrahúsið og hefur óskað þess af fjölmiðlum að fá frið frá ágangi þeirra. Marussia liðið vildi þakka fyrir sendar kveðjur og sýndan hlýhug. Fulltrúar liðsins verða á staðnum til að aðstoða fjölskyldu Bianchi, ásamt fulltrúum frá Ferrari liðinu. Bianchi er uppalinn í ökumannsakademíu liðsins og því mikil tengsl þar á milli.

Sögur um að Bianchi hafi farið í aðra aðgerð og andi að sjálfsdáðum eru því miður ekki sannar. Einhverjir miðlar höfðu greint frá því.

Frá slysstað, myndin sýnir illa farinn Marussia bílinn.Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vinnur í Japan

Lewis Hamilton vann Japanskappaksturinn á Suzuka brautinni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×