Viðskipti innlent

Heilbrigðisþjónusta á netinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hákon Sigurhansson, forstöðumaður heilbrigðislausnasviðs TM Software.
Hákon Sigurhansson, forstöðumaður heilbrigðislausnasviðs TM Software. mynd/aðsend
Heilbrigðislausnasvið TM Software hefur þróað Veru – heilsuvef, í samstarfi við Embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja en TM Software er hluti af fyrirtækinu.

Fram kemur í tilkynningunni að Vera geri almenningi kleift að eiga í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna á vefnum.

Heilsuvefurinn gerir notendum m.a. mögulegt að bóka tíma í heilbrigðisþjónustu (t.d. hjá lækni eða heilsugæslu), óska eftir endurnýjun á lyfseðli, senda fyrirspurn á heimilislækni og eiga í öruggum samskiptum við lækninn, skoða óútleysta lyfseðla og lyfseðla sem viðkomandi hefur leyst út síðustu þrjú ár ásamt því að skoða helstu atriði úr eigin sjúkraskrá.

„Með Veru verður til örugg leið til samskipta við heilbrigðisþjónustuna og öll samskipti verða hluti af sjúkraskrá einstaklingsins. Þetta er bylting í okkar huga og enginn vafi á að með Veru geta heilbrigðisstofnanir veitt betri þjónustu, með auknu öryggi og síðast en ekki síst aukið hagræði,“ segir Hákon Sigurhansson, forstöðumaður heilbrigðislausnasviðs TM Software.

Embætti landlæknis og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stefna að því að opna þjónustuna í áföngum á fyrstu heilsugæslustöðvunum á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×