Segja að ekki sé hægt að ganga endalaust í buddu neytenda Stefán Árni Pálsson skrifar 10. september 2014 14:37 Telja að umrædd gjaldtaka komi harðast niður á eldri borgurum.
Neytendasamtökin gera alvarlegar athugasemdir við þær fyrirætlanir íslensku bankanna að setja á laggirnar nýtt þjónustugjald sem sem felst í gjaldtöku af þeim sem óska eftir þjónustu gjaldkera. Það er mat samtakanna að umrædd gjaldtaka komi harðast niður á eldri borgurum sem ekki greiði reikninga sína í heimabanka, sem og öðrum sem séu eru með litla tölvukunnáttu.„Þá má einnig velta fyrir sér hvort öryggi sjálfvirkra bankaviðskipta sé slíkt að rétt sé að skylda neytendur á þennan hátt í þá átt, en skemmst er að minnast þess að óprúttnum aðilum tókst að setja upp lesara í einhverjum hraðbönkum og olli það fjölda korthafa, sem þá þurftu að sæta lokun korta sinna í einhvern tíma, bæði óhagræði og óþægindum,“ segir í frétt á síðu Neytendasamtakanna.Þá hafa einnig vaknað upp spurningar hvort það standi til að taka upp sérstakt gjaldkeraálag í öllum tilvikum bankanna eða aðeins sumum.„Þegar neytendur kaupa t.a.m. gjaldeyri greiða þeir þegar ríflega fyrir þá þjónustu með þeim mun sem er á kaup- og sölugengi erlendra gjaldmiðla hjá bönkunum. Væri því að mati Neytendasamtakanna fráleitt að innheimta jafnframt sérstakt gjaldkeragjald fyrir slíka þjónustu.“ Það er mat Neytendasamtakanna að það sé ekki endalaust hægt að ganga í buddu neytenda og afkoma þessara fyrirtækja gefi ekki tilefni að svo sé gert. Samtökin benda einnig á að eldri borgarar séu sennilega sá viðskiptahópur sem bankarnir græði hvað mest á, þar sem sparifé þeirra liggi inná lágvaxtareikningum.„Á meðan vaxtamunur er eins hár og raun ber vitni væri eðlilegra að veita þeim þjónustu umfram aðra frekar en að skerða hana.“
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira