Virði eigna Kaupþings jókst um tæpa ellefu milljarða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. september 2014 16:41 Vísir/Stefán
Bókfært virði eigna Kaupþings í lok júní 2014 nam 788,8 milljörðum króna og jókst um 10,7 milljarða eða um 1,4% á fyrri helmingi ársins. Því til viðbótar hafði félagið greitt 17,5 milljarða króna á vörslureikning til að mæta umdeildum forgangskröfum. Mælt í evrum jókst verðmæti eignasafnsins um 210 milljónir eða um 4,3%. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Kaupþings hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2014 sem birtur var í dag og sendur fjölmiðlum. Árshlutareikningurinn sem er óendurskoðaður, er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning og yfirlit um sjóðstreymi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.Helstu atriði árshlutareikningsins -Bókfært virði eigna Kaupþings nam 788,8 milljörðum króna samanborið við 778,1 milljarð í árslok 2013. -Hrein virðisbreyting eigna nam 36,5 milljörðum króna. -Neikvæð gengisáhrif námu 12,9 milljörðum króna. -Greiðslur inn á vörslureikning vegna umdeildra forgangskrafna námu 2,6 milljörðum króna. -Handbært fé Kaupþings nam 413,1 milljarði króna samanborið við 418,5 milljarða í árslok 2013. -Útistandandi kröfur námu 2.856,7 milljörðum króna og hafa lækkað um 22,6 milljarða það sem af er ári. Hrein virðisbreyting eigna var jákvæð á tímabilinu og nam 36,5 milljörðum króna, en neikvæð gengisáhrif vegna styrkingar krónunnar námu 12,9 milljörðum og greiðslur inn á vörslureikning vegna umdeildra og seint framkominna forgangskrafna námu 2,6 milljörðum. Handbært fé Kaupþings stóð í 413,1 milljarði króna við lok tímabilsins og lækkaði um 5,4 milljarða eða um 1,3%. Lækkunin skýrist m.a. af neikvæðum áhrifum vegna styrkingar krónunnar. Mælt í evrum jókst handbært fé um 40 milljónir eða um 1,5%. Heildareignir Kaupþings í erlendum myntum eru metnar á 626,2 milljarða króna en eignir í íslenskum krónum eru metnar á 162,6 milljarða. Útistandandi kröfur lækka Samþykktar kröfur í kröfuskrá námu 2.792,6 milljörðum króna og hafa þær lækkað um 10,9 milljarða á tímabilinu. Að meðtöldum ágreiningskröfum námu útistandandi kröfur á hendur Kaupþingi 2.856,7 milljörðum króna og hafa þær lækkað um 115,5 milljarða á tímabilinu. Ástæður þessarar lækkunar má að mestu leyti rekja til úrlausna ágreiningsmála.Rekstrarkostnaður lækkar um 6,9% Rekstrarkostnaður Kaupþings á fyrri helmingi ársins nam 2,7 milljörðum króna og lækkaði um 0,2 milljarða eða um 6,9% frá fyrra ári. Rekstrarkostnaður tímabilsins á ársgrundvelli, nam 0,3% af nafnvirði eigna sem voru 2.003 milljarðar króna í lok tímabilsins og 0,7% af bókfærðu virði eigna. Tæplega helmingur rekstrarkostnaðarins er vegna aðkeyptrar erlendrar sérfræðiráðgjafar. Þá námu greiðslur Kaupþings vegna virðisaukaskatts 140 milljónum króna, eða sem svarar til rúmlega 5% af heildarkostnaði.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira