Bretland slapp með skrekkinn Heimir Már Pétursson skrifar 19. september 2014 19:48
Bretland slapp með skrekkinn í einni sögulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu Evrópu þegar skoska þjóðin greiddi atkvæði um hvort Skotland ætti að verða sjálfstætt ríki. Atkvæðagreiðslan mun örugglega leiða til mikilla breytinga í breskum stjórnmálum og jafnvel til þess að Bretland verði sambandsríki. 45 prósent Skota greiddu atkvæði með fullu sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær er 55 prósent vildu halda sambandinu við Bretland. Þetta er töluvert meiri munur en síðustu kannanir sýndu í vikunni, en þá ber að hafa í huga að mjög margir kjósendur voru óákveðnir fram á síðustu mínútu og mjög hátt hlutfall greiddi atkvæði utan kjörfundar. Kjörsókn sló öll met, en 86 prósent kosningabærra manna greiddi atkvæði og fór kjörsóknin í einstökum kjördæmum yfir 90 prósent. Mestur var stuðningurinn við sjálfstæðið í Dundee, rúm 57 prósent og í fjölmennasta kjördæminu, Glasgow, þar sem rúm 53 prósent vildu sjálfstætt Skotland. Kosningagreiningar sýna að það voru helst atvinnulausir og ómenntað verkafólk sem vildi sjálfstætt Skotland en hin menntaða millistétt, eins í háskólaborginni Edinborg, vildi halda í sambandið, eða 61 prósent. David Cameron forsætisráðherra var létt þegar hann ávarpaði fréttamenn snemma í morgun. Segja má að skosku kosningarnar hafi verið alvarleg viðvörun til til stjórnmálaflokkanna í Bretlandi, enda lofa leiðtogar þeirra allra að tekið verði mark á háværum óánægjuröddum tæplega helmings skosku þjóðarinnar, sem einnig óma í öðrum hlutum Stóra-Bretlands. Þingkosningar fara fram í Bretlandi eftir níu mánuði og má segja að þjóðaratkvæðagreiðslan í gær marki upphaf kosningabaráttunnar fyrir þær og leiði ef til vill til þess að Bretland verði sambandsríki í náinni framtíð.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira