Viðskipti innlent

Laun forstjóra Össurar jafngilda launum 31 verkamanns

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Forstjóri Össurar, Jón Sigurðsson, trónir á toppi skráðra félaga en launatekjur hans í fyrra jafngilda meðallaunum þrjátíu og eins verkamanns.
Forstjóri Össurar, Jón Sigurðsson, trónir á toppi skráðra félaga en launatekjur hans í fyrra jafngilda meðallaunum þrjátíu og eins verkamanns. vísir/vilhelm
Ný athugun Alþýðusambandsins (ASÍ) leiðir í ljós að nokkrir forstjórar fjármálafyrirtækja eru með tugföld árslaun venjulega launafólks. Kjör stjórnenda í fjármálafyrirtækjum fyrir bankahrun voru slík að það tæki fimm til sex verkamenn alla starfsævina til að vinna sér inn laun sem samsvara árslaunum eins manns. Samkvæmt athuguninni er þessi tími kominn aftur.

Forstjóri Össurar, Eimskipafélags Íslands, Haga og Marels eru þeir hæst launuðu.

Forstjórar Össurar, Jón Sigurðsson, trónir á toppi skráðra félaga en launatekjur hans í fyrra jafngilda meðallaunum þrjátíu og eins verkamanns. Mánaðarlaun Jóns eru um 8,5 milljónir.

Þá samsvara laun forstjóra Haga, Finns Árnasonar, launum tæplega fimmtán verkamanna. Mánaðarlaun Finns eru um 5,8 milljónir króna.

Marel skipti um mann í brúnni á síðari hluta árs 2013. Fyrrum forstjóri hafði á árunum 2011 og 2012 launatekjur um 20 fullvinnandi verkamanna en fékk á árinu 2013 þegar hann lét af störum um 480 milljónir króna í laun. Sú upphæð jafngildir launum ríflega 86 fullvinnandi verkamanna eða samsvarandi því sem tekur tvo verkamenn alla starfsævina að vinna sér inn. Nýr forstjóri fékk nokkuð lægri laun en fyrirrennari sinn en mánaðarlaun fyrir þann tíma sem hann var í starfi á árinu 2013 námu ríflega 12 verkamannalaunum.

ASÍ reiknaði launahlutfall forstjóra í öllum íslenskum fyrirtækjum sem skráð voru á hlutabréfamarkaði í júlí 2014. Hlutfallið er skoðað út frá meðallaunum fullvinnandi verkafólks í landinu og launahlutfall út frá meðallaunum starfsmanna í viðkomandi fyrirtæki. Skoðaðar voru tölur fyrir árin 2011 til 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×